Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Alþjóðleg bangsahátíð í Reykjavík – Sameinast um lífsgleði, samstöðu og samkennd

Bangsar í Bláa lóninu.
Bangsar í Bláa lón­inu. Mynd: Aðsend

Bangsa­félagið stendur fyrir árlegri hátíð félagsins Reykjavík Bear dagana 31. ágúst til 3. september. Rúmlega 100 erlendir bangsar víðsvegar úr heiminum mæta til Íslands og fagna með Bangsa­félaginu. Reykjavík bear hátíðin í ár er nokkuð stærri en í fyrra með tvöfalt fleiri miðum seldum en áður. Hátíðin hefur stækkað ár frá ári og hefur aldrei verið vinsælli. Hátíðar­passar hafa verið uppseldir frá því í júní. Að auki má gera ráð fyrir tals­verðum fjölda bangsa sem búa á Íslandi á hátíðinni sem og aðdáendum þeirra. Bangsa­félagið er hagsmuna­félag Samtak­anna ’78 og félags­skapur bangsa (e. Bears) á Íslandi.

Bangsar á góðir stundu á bangsa­há­tíð­inni 2022.

Allir eru velkomnir á Reykjavík Bear, sís, trans eða kynsegin og alveg sama hvernig fólk lítur út en líkams­skömm verður að skilja eftir heima. Bangsar eiga það oftast sameiginlegt að vera ljúfir, hressir, skemmtilegir og góðir við náungann. Bangsa­félagið var stofnað árið 2019 í kringum árlegu bangsa­hátíðina Reykjavík Bear. Að auki heldur Bangsa­félagið fjölda viðburða, eflir samstöðu og félags­skap og vinnur að því að auka sýnileika bangsa og þeirra sem tilheyra því samfélagi með einum eða öðrum hætti. Bangsar vita að það eru allskonar líkamar og allskonar fólk. Bangsar vita að þegar maður lítur ekki út eins og fólkið í tísku­tímaritum og flest fólk í sjónvarpi er auðvelt að fara að trúa því að maður sé þess ekki verðugur að vera elskaður. Bangsarnir sameinast um lífsgleði, samstöðu og samkennd.

Bangsar allra landa sam­ein­ist.

Reykjavík Bear stendur yfir í fjóra daga með nokkrum fjölda skemmtana en þar á meðal eru heimsókn í Bláa lónið, ferð um Gullna hringinn, bangsabrunch, heimsókn í Sky lagoon og bangsapartý öll kvöldin. Á föstudags­kvöld er Top-off partý á Gauknum þar sem gestum er boðið að skemmta sér berir að ofan og meðal skemmtikrafta eru DJ Mighty Bear sem blandar saman hinsegin menningu, drag og fram­úrstefnu­legum tónum og DJ Neo Scott sem kemur frá Spáni. Á laugardag er svo aðalpartý hátíðarinnar sem haldið er á Sunset Bar í Reykjavík EDITION Þar mun DJ Joff frá Frakk­landi skemmta alþjóð­legum hópi bangsa og ásamt heima­fólki sem vill skemmta sér með þeim..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt