Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólki á Íslandi með meðferðarþrátt þunglyndi mun innan fárra ára bjóðast psilocybin meðferð

Fjöldi rannsókna gefur tilefni til að binda vonir við virkni Psilocybin, hugbreytandi efni sem finnst í ofskynjunar­sveppum, gegn meðferðarþráu þunglyndi, og verið hefur talsvert til umræðu að undan­förnu.

Í dag er staðan sú að talið er að á bilinu 15 til 30 prósent þeirra sem þjást af völdum þung­lyndis svari illa meðferð, en þetta kemur fram á vefnum ruv.is.

Sveppirnir eru ekki ný uppgötvun; hvað þá virkni þeirra; vitað er til þess að þeir hafi verið notaðir við helgi­athafnir í Mexíkó fyrir um þrjú þúsund árum.

En svo leið og beið.

Þegar komið var fram á sjötta áratug síðustu aldar hófust rann­sóknir á áhrifum psilocybins á geðraskanir; en þær rann­sóknir voru stöðvaðar þegar að sveppirnir áður­nefndu voru gerðir ólöglegir í Banda­ríkjunum árið 1970.

Kemur fram í nýrri grein í Lækna­blaðinu að ný safn­greining sýni marktækan árangur psilo­cybin-með­ferðar við meðferðarþráu þunglyndi. Og þar kemur einnig fram að niður­stöður úr fasa 2-rannsókn lofi afar góðu.

Til að psilocybin-meðferð fái ábendingu – sem og markaðs­leyfi – hjá lyfja­stofnunum er næsta stóra skrefið að ljúka fjöl­þjóðlegri fasa 3-rannsókn – sem stefnt er að því að hefjist á þessu ári; þannig gæti sjúklingum með meðferðarþrátt þunglyndi innan örfárra ára staðið til boða að reyna slíka meðferð.

Þær aukaverkanir sem komu í ljós voru yfirleitt metnar vægar og/eða meðal­alvarlegar, og entust ekki lengi.

Meðferðin mögulega fer þannig fram að sjúklingur fær 25 milli­grömm af psilocybini, oftlega í eitt skipti, leggst svo fyrir í fimm til átta klukku­stundir; eða þann tíma sem ofskynjunar­áhrifin vara – með bundið fyrir augu og tónlist í eyrunum. Fagaðili verður að sitja yfir sjúklingnum allan tímann. Og svo virðist sem jákvæðra áhrifa á geðheilsu sjúklinga geti síðan gætt svo mánuðum skipti eftir eina slíka meðferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“