Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ósáttir farþegar Icelandair fengu tæpar 190 þúsund krónur fyrir ónýta ferðatösku úr járni

Bogi Nils Bogason
Bogi Nils Bogason Mynd: Hordur Sveinsson

Icelandair hefur verið gert að greiða viðskipta­vinum rétt tæpar 190 þúsund krónur fyrir tjón á ferða­tösku. Þetta kom fram í ákvörðun Samgöngu­stofu sem hækkaði skaða­bóta­upphæðina sem Icelandair hafði boðið eigendum ferða­töskunnar en Vísir fjallaði um málið í morgun. Farþegarnir voru á leiðinni frá Chicago til Kefla­víkur í maí á síðasta ári þegar taskan skemmdist  í vörslu flug­félagsins. Farþegarnir fylltu út tjóna­skýrslu við komuna til landsins og skiluðu einnig inn greiðslu­kvittun fyrir ferða­töskunni til Samgöngu­stofu.

Í skýrslunni kom fram að taskan hafði verið keypt árið 2019 fyrir 189 þúsund krónur. Þá sögðu farþegarnir að taskan hafi verið eins og ný. ,,Það þarf virkilega slæma meðferð og kæruleysi starfs­manna til að geta skemmt tösku úr járni eins og gerðist hjá starfs­mönnum á vegum Icelandair,“ sagði enn fremur í skýrslunni. Icelandair bauð ósáttum farþegunum  tæpar 143 þúsund krónur í bætur en við ákvörðun upphæðar hafði verið gert ráð fyrir verð­rýrnun upp á 10 prósent frá árinu 2019, þegar taskan var keypt. Farþegarnir sættu sig ekki við þetta og sögðu þau töskuna hafa verið keypta með það í huga að þurfa aldrei aftur að kaupa aðra tösku.

Auk þess var tekið fram að umrædd gerð af tösku væri ekki fáanleg á Íslandi og myndi kosta 260 til 270 þúsund krónur að senda töskuna til landsins, með sköttum. Niður­staða málsins var sú, samkvæmt útreikningum Samgöngu­stofu, að Icelandair var gert að greiða viðskipta­vinunum 188.329 krónur fyrir tjónið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim