Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

20 ára bið Aðalsteins senn á enda: „Okkur þótti það svo fyndið og ógeðslegt“

Graveslime kunna heldur betur að rokka!
Gra­veslime kunna heldur betur að rokka!

Tækni­fræðingurinn, faðirinn og „költ­hetjan“ Aðalsteinn Möller ræðir um Graveslime.

Aðalsteinn Möller er fljótt á litið venju­legur fjölskyldu­faðir. Hann er 43 ára, giftur tveggja barna faðir og á kött sem heitir Loppa. Hann er tækni­fræðingur og útivistar­maður mikill. En það sem ekki allir vita að hann er bassa­leikari „költ“ hljóm­sveitarinnar Graveslime. Hljóm­sveitin gaf út eina plötu fyrir 20 árum og seldist platan upp á þeim tíma. En Graveslime hélt aldrei útgáfu­tónleika því að sveitin hætti áður platan kom út. Lengi hefur fólk hundelt meðlimi sveitarinnar og grátbeðið þá um að gefa plötuna út í fleiri eintökum, setja hana á netið og síðast en ekki síst að halda útgáfu­tónleika. Nú mun draumur þessa fólks rætast því platan er þegar komin á netið, vínyl-útgáfa komin út og útgáfu­tónleikar á KEX Hostel 31. ágúst. Mannlíf heyrði í Aðalsteini og spjallaði við hann í tilefni tónleikana.

„Platan kom út árið 2003 á geisla­disk en hljóm­sveitin hætti rúmu hálfu ári áður,“ sagði Aðalsteinn um af hverju hljóm­sveitin væri að halda útgáfu­tónleika 20 árum eftir útgáfu. „Þegar við ákváðum að gefa plötuna út á vínyl fyrir rúmu ári síðan föttuðum við að hún ætti 20 ára afmæli. Því var þetta rakið dæmi og mjög kómískt að halda útgáfu­tónleika núna 20 árum seinna sem aldrei urðu,“ en hvaðan kemur eiginlega þetta furðulega Graveslime nafn?

„Nafnið verður til í einhverju partíi eða djammi og okkur þótti það svo fyndið og ógeðslegt að við urðum að stofna bandið,“ en í Graveslime eru þeir Kolbeinn Hugi Höskuldsson, Ólafur Steinsson og Birkir Fjalar Viðarsson ásamt Aðalsteini

Gra­veslime eru miklir vinir

„American Sleeper er uppáhalds lagið mitt,“ sagði Aðalsteinn um hvort hann eigi sér uppáhalds lag á plötunni. „Textinn finnst mér mjög flottur og lagið segir ákveðna sögu. Það er líka mjög langt og bæði hart og silki­mjúkt í senn sem gerir söguna meira lifandi en svo er svo mikið landslag í laginu. Svo spilaði Gulli Óttars úr Þeysurunum „epískt“ gítarsóló í enda lagsins sem ég alltaf gæsahúð yfir.“

Margir myndu halda að hljómsveit sem nefnir plötu Roughness and Toughness að hlýtur innihalda nokkuð vel „harða“ einstaklinga en Aðalstein segir svo ekki vera.

„Nafnið er alls ekki lýsandi fyrir meðlimina,“ sagði hann hlæjandi „Enginn okkar er neitt sérstak­lega harður eða grófur en kannski vorum við Kolli heldur grófir persónu­leikar hér áður. Við vorum allavegana ekki allra á þessum tíma. Óli er og var allra manna yndi.“

En hvaða íslensku tónlistar­menn eru að heilla Aðsteinn mest, fyrir utan Graveslime?

„Tja, við erum bara að spila 20 ára gamalt efni svo við erum ekkert að gerast í dag en það er svo mikið af flottum böndum sem eru að gera geggjaða hluti eins og Godchilla, Góðæri, Kælan Mikla, Skoffín en svo elska ég líka rólegt eins og GDRN og Bríet.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt