Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

„Andlegt heilbrigði er málefni sem varðar okkur öll – veljum að smita hinu góða og uppbyggilega“

Anna Jóna Guðmundsdóttir. Ljósmyndari Silla Páls
Anna Jóna Guð­munds­dóttir. Ljós­mynd­ari Silla Páls

„Það vantar uppbyggjandi forvarnar­starf sem ýtir undir heil­brigði einstaklingsins. Besta forvarnar­starfið liggur í sjálfs­þekkingu og umburðar­lyndi gagnvart sjálfum sér og öðrum. Einnig er mikilvægt að fólk geti leitað sér stuðnings án þess að einhver greining liggi til grund­vallar og mikilvægt er að sjúkdóms­væða ekki eðlilegar tilfinningar.

Gott geðheil­brigði þýðir ekki að þú sért alltaf hamingju­samur, heldur frekar að þú sért meðvitaður um þína tilfinninga­legu fjöl­breytni sem manneskja og kunnir á bjargráð þín. Það er ekki bara heilbrigðis­kerfisins að stuðla að andlegu heil­brigði, það er líka skóla­kerfisins, vinnu­markaðarins og hinna ýmsu stoð­stofnana. T.d. er markviss vinna að fyrir­byggjandi loftslags­aðgerðum líka geðheilbrigðismál því að hún eykur öryggi og hefur augljósan tilgang.“ Þetta segir Anna Jóna Guðmunds­dóttir, ráðgjafi og sérfræðingur í uppbyggingu teyma (e. Organisational Team Consultant) hjá Auðna ráðgjöf.

Jákvæð sálfræði

Ljós­mynd­ari: Silla Páls.

Auðna ráðgjöf er teymi sem heldur úti fyrir­lestrum, vinnu­stofum og styrkleika­þjálfun með jákvæða sálfræði að leiðar­ljósi.

„Jákvæð sálfræði er frábær fræði­grein, því hún kemur inn á svo margt, stóri parturinn er vellíðan og flestir tengja sálfræði við vellíðan og jákvæðni, en annar jafn stór þáttur er árangur og velgengni. Í mörgum tilfellum fer þetta vel saman bæði á vinnu­stöðum og í persónu­legu lífi.“

Anna segir í samtali við Mannlíf að þau séu: „hluti af sívaxandi giggarahagerfi og erum við núna í samstarfi við Hoobla klasann sem er með yfir 50 giggara á skrá. Vinnu­stofan sem við bjóðum er sérsniðin fyrir teymi. Í vinnu­stofunni er á mark­vissan hátt unnið að árangri út frá styrk­leikum og markmiðum teymisins auk þess sem unnið er með verkfæri sem styrkja samvinnu og stuðla að jákvæðni.

Í framhaldi af námskeiðum býðst þátt­takendum sem vilja, að vinna áfram eigin styrkleika­greiningu í mark­þjálfun. Mark­þjálfun er alltaf á forsendum mark­þjálfunar­þegans en við erum sérstak­lega að höfða til fólks sem vill leggja áherslu á styrk­leika, tilfinninga­greind og sköpun. Mark­hópurinn hentar öllum, óháð vinnu­stofum, sem dæmi má nefna tilfelli þar sem starfs­fólk vill vinna með jákvæða þætti, starfs­fólk sem vill líta inn á við t.d. í kjölfar breytinga og þá sem hafa farið í kulnun.“

Ný verkfæri og betri samskipti

Auðna Tækni­torg – fyr­ir­lestur.

Anna Jóna hefur verið með vinnu­stofur og námskeið í nokkur ár, meðal annars hjá Endur­menntun Háskóla Íslands. Samstarfs­kona hennar, Þórhildur Sveins­dóttir, er lærður mark­þjálfi með áherslu á tilfinninga­greind og hefur í nokkur ár boðið upp á mark­þjálfun bæði á Íslandi og erlendis, með mjög góðum árangri. Það sem drífur þær áfram er áhugi á að miðla því sem er jákvætt og að efla fólk. Ánægðir viðskipta­vinir, sem hafa tileinkað sér ný verkfæri og betri samskipti, eru það sem gleður þær mest, en nánari upplýsingar um starfsemina má sjá inn á Hoobla-vefsíðunni.

Nálgun jákvæðrar sálfræði nýtir eigin­leika og auðlindir einstaklinga, teyma og samfélaga til þess að ná árangri og vellíðan. Jákvæð sálfræði horfir til þess, að til þess að árangur náist þurfi að huga að grunn­þörfum eins og tengsla­myndun og stuðla að því að fólk geti nýtt styrk­leika sína og notið virðingar.

Stefnu­mótun á grund­velli jákvæðrar sálfræði felur í sér að jafnvægi sé til staðar þannig að varanlegur og sjálfbær árangur náist til lengri tíma. Auðlindir og styrk­leikar eru nýttir til að auka vellíðan og einnig til að takast á við hindranir og veikleika sem geta staðið í vegi fyrir því að árangur náist.

Þór­hildur Sveins­dóttir. Ljós­mynd­ari Silla Páls.

Uppbyggjandi samskipti

Grunn­stoðir jákvæðrar sálfræði eru: „að halda á lofti umræðu um þessa þætti, ásamt því að hugað að því að grunn­þörfum fólks sé mætt í þjóð­félaginu, það skiptir máli. Einnig er mikilvægt að samtal eigi sér stað um andlega heilsu og allir njóti virðingar. Uppbyggjandi samskipti og samtal er grunnur þess að hver og einn einstaklingur nái að blómstra og nýta styrk­leika sína. Í mörgum tilfellum er fólk ekki meðvitað um styrk­leika sína og þá sérstak­lega vannýtta styrk­leika. Mark­þjálfun og jákvæð sálfræði fara einstak­lega vel saman vegna þess að mark­þjálfun er í sjálfu sér vald­eflandi og ýtir undir framkvæmda­gleði einstaklingsins.

Með jákvæðu samtali og opinni umræðu kemur meiri sjálfs­þekking og tilfinninga­greind eykst. Að þekkja sjálfan sig betur og vinna að betri tilfinninga­greind hefur góð áhrif á okkur sjálf og umhverfi okkar. Jákvæðar tilfinningar eru smitandi og hafa margfeldis­áhrif. Hér getum við öll lagt okkar af mörkum,“ segir Anna.

Anna segir að lokum: „Andlegt heil­brigði er málefni sem varðar okkur öll. Oft er fyrst horft til heilbrigðis­kerfisins en það þarf að vinna að heil­brigði á heimilum, í skólum og á vinnu­stöðum. Jákvæð samskipti og andrúms­loft stuðla að andlegu heil­brigði.

Við erum öll ábyrg og getum lagt okkar af mörkum. Tilfinningar eru smitandi. Veljum að smita hinu góða og uppbyggilega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki