Ferðamaður féll meira en 5 metra
Nú er búið er að staðsetja ferðamanninn er féll á gönguleiðinni við Glym í morgun; eru björgunaraðgerðir í fullum gangi.
Komið er á daginn að um erlendan ferðamann er að ræða.
„Það er verið að vinna í þessu. Það er ljóst að fallið hefur verið meira en fimm metrar,“ segir Ásmundur Kr. Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi í samtali við mbl.is.
Ásmundur segir slysið alvarlegt enda eru fjölmargar björgunarsveitir á svæðinu ásamt lögreglu; einnig er þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu.
Þyrlan sneri aftur til Reykjavíkur eftir að hafa flutt þangað björgunarsveitarmenn; ekki var talin þörf á henni.
Segir Ásmundur aðstæður á vettvangi afar erfiðar.
„Það er ís þarna og þröngt gil eins og svo margir þekkja. Það hafa orðið slys þarna áður.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir