Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Páll skipstjóri um brotthvarf Þóru: „Verðlaun eru ekki ávísun á heiðarleg vinnubrögð“

Páll Steingrímsson og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks. Myndin er samsett
Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks. Myndin er sam­sett

„Þóra segist vera marg­verðlaunuð. Verðlaun eru ekki ávísun á heiðarleg vinnu­brögð eins og sumir vilja vera láta,“ segir Páll Steingrímsson skip­stjóri um brott­hvarf Þóru Arnórs­dóttur af Ríkis­útvarpinu. Hann vitnar til hneykslis­máls á Der Spiegel þar sem verðlauna­blaða­maðurinn Claas Relotius var afhjúpaður fyrir fals­fréttir.

Páll hefur haft alvarlegar athuga­semdir við aðkomu Þóru að svonefndu skæruliða­máli sem snýst um að síma Páls var rænt þar sem hann var meðvitundar­laus á sjúkra­beði og hann afritaður. Páll hefur haldið því fram að honum hafi verið byrlað ólyfjan sem leiddi til hinna alvarlegu veikinda. Fyrir liggur að fyrr­verandi eiginkona Páls tók símann ófrjálsri hendi. Samkvæmt lögreglu­skýrslum var Þóra Arnórs­dóttir ítrekað í sambandi við konuna eftir þjófnaðinn. Fréttir birtust um skæruliða­sveit Samherja í Kjarnanum og á Stundinni en ekki á RÚV.

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi hóf rannsókn á málinu og eru nokkrir blaðamenn með stöðu sakborninga. Þeirra á meðal er Þóra sem sagði við Heimildina að starfslok hennar ættu sér ekki rætur í aðkomu hennar að skæruliða­málinu. „Nei, ekki þannig. Ég hef aldrei misst svefn yfir neinu sem tengist Samherja og ætla ekki að fara að gera núna,“ sagði hún.

Páll skip­stjóri segist ekki efast um að Þóra hafi átt óeðlilega aðkomu að málum. Hann segist ekki vita hvernig rann­sóknin á byrlunar­málinu standi. Þar fáist ekki nein svör.

„Ég set allt mitt traust á lögregluna og bíð bara eftir því að hún ljúki sinni rannsókn,“ segir Páll.

Þóra Arnórs­dóttir hefur ekki látið Mannlíf ná í sig þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim