Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Anna Kristjáns minnist litríks samstarfsmanns: „Hann var svo sannarlega hommi af guðsnáð“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns segir í pistli sínum að „ég leit við á Búkkanum í gærkvöldi, skuldaði Pétri bjór fyrir dygga aðstoð eftir að skápa­hurðirnar fóru að hrynja niður ein af annarri. Það dreif að fleira fólk, því þrátt fyrir kuldann var alveg hægt að sitja úti þótt flestir Bretarnir héldu sig innandyra. Við Íslendingarnir gátum ekki annað en reynt að halda út á útisvæðinu, en auk mín, Péturs og Ástu var Stefanía, fyrrum þerna hjá Fjall­fossi (ll) mætt þar sem og Auður og Þorgrímur sem hafa dvalið hér að undan­förnu.“

Hún segir að „talið barst að hrepparíg og talið barst að því er Pálmi vinur minn Pálsson reyndi að sannfæra fólk um að það væri betra að fara upp á Hérað á leið sinni frá Breið­dalsvík til Fáskrúðs­fjarðar til að hitta kærustuna í gamla daga í stað þess að aka í gegnum hinn fjandsamlega Stöðvar­fjörð að hans mati.

Bæði Stefanía og Þorgrímur þekktu til Pálma og skildu mætavel afstöðu hans. Fyrir­gefðu mér Pálmi minn, þetta var ekki illa meint og við sem þekkjum þig erum öll sammála um manngæsku þína og höfðingsskap þótt þú sért löngu fluttur til Horna­fjarðar. Af einhverri heppni var ég með mynd af þér í símanum.“

Hún bætir þessu við:

„Þetta minnir mig á frægan túr sem við fórum í; sölutúr til Grimsby árið 1969. Það var skroppið á Rauða ljónið og þar hitti ég fyrir áhöfnina á bát að austan (Sigurður Jónsson SU 150?) sem var að selja aflann á sama tíma og við. Þekkti kokkinn um borð sem ég hafði siglt með á Þorkeli mána einhverjum árum áður, vissi mætavel um kynhneigð hans og hann vildi láta líta út fyrir að hann og stýri­maðurinn væru par.

Svo skrapp ég á klósettið og stýri­maðurinn kom á eftir mér og ég hugsaði með mér, jæja eru fleiri svona þarna um borð. En þá var stýri­maðurinn einungis að láta mig vita að Gulli kokkur hefði meiri áhuga á strákum en stelpum, svona góðfúsleg varnaðarorð sem voru algeng á þessum árum, en ég vissi það reyndar áður.“

Segir að endingu:

„Þarna kynntist ég Pálma fyrst, en síðar vorum við skips­félagar á Vestmannaey VE 54 í nokkur ár en löngu síðar um tíma á Hólmanesi SU 1, einn af mínum uppáhalds­skips­félögum.

Ég veit hinsvegar ekkert hvað varð af Gulla kokk eftir þetta, en hann var svo sannarlega hommi af guðsnáð og var ekkert að fara í felur með tilfinningar sínar á tímum sem slíkt var nánast bannorð.

Það væri gaman að heyra af honum ef hann er enn á lífi, þá vafalaust kominn nærri áttræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim