Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Segir Svandísi nákvæmlega sama: „Þá var hann laminn í hálftíma og líklega er skepnan bara dauð“

Illa farið með fallegar skepnur.
Illa farið með fal­legar skepnur. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Steinunn Árna­dóttir hestakona segir Matvæla­stofnun algjör­lega vanhæfa en hún kom hrossa­níðings­málinu í Borgarnesi á hreyfingu. Það gerði Steinunn með því að birta ljós­myndir af illa förnum hrossunum sem um var rætt.

Steinunn Árna­dóttir

„Þetta er mjög sorglegt. Kerfið er algjör­lega að bregðast enda tók Ríkis­endurskoðun þá afdrífa­ríku afstöðu eftir að málið kom upp, að þeir myndu fara yfir þessa verkferla hjá þeim,“ sagði Steinunn í samtali við Mannlíf.

Hefur áhyggjur af vetrinum

Aðspurð hvort hún vissi hvað væri að frétta um hrossin og hvar þau séu stödd sagði Steinunn að hrossin væru ekki komin aftur á sinn stað eftir að hafa verið færð í skjóli nætur. „Þetta eru um 28 hestar sem þessir einstaklingar eru með rétt fyrir ofan Borgarnes og þar eru þau enn. En það er ekkert verið að fylgjast með þeim. Og nú stefni í veturinn og kulda en ég var þarna einmitt í morgun [fyrir helgi, inn­skot blaða­manns] og vegna þess að það var fínt veður þá var þetta í lagi en manni lýst ekkert á blikuna þegar það fer að kólna því þau eru búin að vera inni í heilt ár.“ Aðspurð um holdarfarið á hrossunum segir Steinunn að þau séu útþanin og bætti við „þau voru auðvitað svo svöng og eru útþanin núna en það er ekkert að marka fyrr en maður kemur nær og snertir þau, til að sjá hvernig þau hafa braggast. En það lýtur ekkert vel út með þau, þau eru ekki undirbúin fyrir veturinn og ef þau verða sett inn af þessu sömu aðilum þá náttúru­lega er þetta áfram svona horfóðrun, þannig að það myndi ekki vera neitt líf. Það sýnir sig náttúru­lega með þessum hætti, eins og hvernig þessi trippi voru að þessir einstaklingar eru alls ekki hæfir til að vera með skepnur. Það ætti að vera deginum ljósara með þessum myndum og maður er bara argur yfir því að það sé ekki búið að taka þessar skepnur af þeim.“ Steinunn segir að fyrri eigendur hestanna vilji fá þá aftur til baka. „Það eru nokkrir aðilar sem hafa haft samband við mig, fólk sem er að reyna að fá þessi trippi til baka, þau vilja ekki sjá þau í þessari niður­lægingu. Það ætti að vera búið að svipta þessum einstaklingum umráðum yfir þessum skepnum. Maður er mjög svekktur að það sé ekki búið.“

Illa farið með fal­lega skepnu.

Kerfið virkar ekki

Steinunn segir að vegna fjölmiðlaum­fjallanna og birtingu ljós­myndanna af hrossunum hafi einstaklingarnir verið málaðir út í horn og því fjarlægt hrossin „í skjóli næturs“. Segir hún einnig að Matvæla­stofnunin hafi vitað af málinu í langan tíma en ekki aðhafst neitt. „Það voru bara engin svör. Ég hringdi í Guðlaug Antonsson sem er eftirlits­maður en hann svaraði ekki. Ég hringdi held ég þrisvar sinnu í hann en hann svaraði aldrei. Og ég sendi pósta en þetta er þannig tölvu­póstkerfi hjá MAST að þú færð aldrei senda stað­festingu á að tölvu­pósturinn hafi verið móttekinn, þannig að þeir geta alveg sagt að það sé enginn póstur hjá þeim. Ég þekki fjöldan allan af fólki sem segir mér að það hafi látið MAST vita af þessu. En MAST er ekki að virka, það er algjör­lega búið að sanna sig.“

Illa farið með fal­legar skepnur.

„Svandísi er nákvæmlega sama“

Steinunn segist óttast að ekkert verði gert í málinu: „Maður óttast bara að þetta fólk fái að hafa skepnurnar áfram og það er búið að sýna fram á að það er ekki í lagi að þau séu með skepnur undir höndum.“ Nefnir Steinunn að hún hafði sent Svandísi Svavars­dóttur bréf á dögunum þar sem hún sagði henni frá misþyrmingu á kú sem festist í skurði hjá þessum sömu einstaklingum. „Ég sendi henni þetta á miðvikudaginn því það hringdi í mig nágranni þeirra sem horfði á manninn misþyrma nautgrip sem hafði dottið út í skurð og var hjálpað upp úr skurðinum en stóð þá ekki í fæturnar. Þá var hann laminn í um hálftíma og líklega er skepnan bara dauð. Þau voru svo miður sín, þessir nágrannar að þau hringdu í mig og þau hringdu í lögregluna og ég sendi þetta bréf á Svanhildi. Ég hef ekki fengið eitt einasta svar frá Svandísi, henni er svo nákvæmlega sama. Ég minnti hana á það í bréfinu að sem matvæla­ráðherra hafi hún yfir­umsjón með velferð dýra. En það á sýnilega ekki upp á pall­borðið núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana