Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sökkti tundurdufl eða heimagerð sprengja Hamranesinu? Náði að mynda dauðastríðið

Ótrúlegar ljósmyndir!
Ótrú­legar ljós­myndir! Mynd: Fritz Glahn

Það var í blíðskapar­veðri að nýsköpunar­togarinn Hamranes RE 165 sökk á örskömmum tíma undan ströndum Snæfellsness þann 18. júní 1972. Allir áhafnar­meðlimir björguðust en heljarinnar réttarhöld voru haldin í kjölfar sjóslyssins. Var það tundur­dufl sem grandaði skipinu eða jafnvel heima­tilbúin sprengja innanborðs?

Vísir birti frétt um örlög Hamraness daginn eftir en einn áhafnar­meðlimur skipsins náði einstökum ljós­myndum af dauða­stríði þess en mynda­syrpan birtist einnig í þýska frétta­blaðinu Der Spiegel.

Frétt Vísis hljóðaði svo:

Lenti Hamranesið á tundur­dufli? – púðurlykt í lofti, segja skip­verjarnir sem björguðust í gúmbátum — einkennileg örlög eins okkar elzta nýsköpunar­togara í góðu veðri nálœgt landinu

Ástæðan fyrir þvi að einn elzti nýsköpunar­togarinn okkar, Hamranes RE 165, sem áður hét Egill Skallagrímsson, sökk í djúpið í blanka­logni eftir því sem gerist til sjós, um 45 mílur út af Snæfellsnesi í gærdag, liggja ekki ljósar fyrir. „Mér þætti það ekki ólíklegt að við hefðum lent á tundur­dufli“, sagði báts­maðurinn á Hamranesinu, þegar hann gekk frá borði Narfa um 2—leytið í nótt ásamt 21 félaga sínum, en vildi annars sem minnst um málið ræða að sinni. Kvaðst báts­maðurinn hafa verið í brúnni, þegar mikill hnykkur kom á skipið, þannig að það tókst á loft. Þetta gerðist um miðjan dag, en undir kvöld sökk skipið, enda átti sjórinn greiða leið inn um kinnung skipsins, en skip­verjar gátu allir yfirgefið skipið í 3 ágætum gúmbjörgunarbátum. Þá töldu skip­verjar sig hafa fundið púðurlykt eftir að óhappið gerðist. Eigendur skipsins voru þeir Hreiðar og Haraldur Júlíussynir, ásamt skip­stjóranum , Bjarna Guðmunds­syni. Togarinn var smíðaður í Selby í Englandi 1947, en eigendur frá því Kveld­úlfur seldi skipið og þar til í desember voru þeir Jón Hafdal og Haraldur Jónsson í Hafnar­firði. Gekk útgerðin a.m.k. á tíma ákaflega brösótt og tóku núverandi eigendur þá við skipinu. Síðustu 11 dagana var skipið á Faxadýpi á veiðum, sögðu þeir eigendurnir okkur suður i Keflavík, þegar þeir biðu eftir skipshöfn sinni. Fátt manna var að taka á móti hinni ungu skipshöfn sem svo óvænt var komin úr síðustu veiðiför Hamraness. „Ég var í véla­rúminu og fann ekkert sérstakt, vissi ekkert fyrr en félagar mínir sögðu mér hvers kyns var“, sagði 22 ára háseti um borð, Fritz Glahn frá Köln i Þýzkalandi, en hann og- félagi hans Rudolf Blickhauser voru meðal áhafnar­manna skipsins og voru í sinni annarri veiðiferð. „Hinsvegar sá ég að gat hafði myndast um miðbik skipsins. „Það var engin hætta á ferðum og því engin hræðsla um borð“, sagði Blickenhauser, „En sannarlega fannst mér það sorgleg sjón að sjá á eftir skipinu undir vatns­borðið, undarleg reynsla fyrir okkur.“ Skip­verjar voru óðar horfnir inn í litla rútu, sem komin var að sækja þá, — en hjá þeim á Narfa var ekki til setunnar boðið, — land­festar voru þegar leystar á ný, þegar áhöfnin á Hamranesi var farin frá borði, — og gúmbátunum skotið upp á bryggju. Litli bíllinn lagði af stað til Reykja­víkur þar sem flestir skipverja búa, en eftir sat lögreglan og hafði að vonum áhyggjur af björgunar­tækjum upp á tugi eða hundruð þúsunda, sem lágu þarna á hafnar­bakkanum í reiði­leysi.

Ótrú­legar ljós­myndir!
Ljós­mynd­ar­inn sjálfur, Fritz Gahn

Hefði verið ískyggilegt í vondu veðri — segir forstjóri Slysavarna­félagsins

Þarna er einn af nýsköpunar­togurunum okkar að hverfa í hafið eftir langa og dygga þjónustu. Þessi skip eru nú tryggð fyrir 15 milljónir króna og er það föst trygging, sem fjárhæða­nefnd fiskiskipa ákveður hverju sinni. Þótt 15 milljónir séu ekki há upphæð í útgerð nú til dags er ekki vafi á að þetta skip hefur skilað á land verðmæti sem nemur hundruðum milljóna undan­farna áratugi. ,,Það hefði verið ískyggilegt ef þetta hefði skeð í svartasta skammdeginu og veður hefði verið slæmt“ sagði Henry Hálf­dánarson hjá Slysavarna­félaginu í samtali við Vísi. Hann sagði einnig að mönnum léki mikil forvitni á að vita hvað fyrir hefði komið, því almennt væru nýsköpunar­togararnir taldir með beztu sjóskipum heims. Ekki kom til þess að Slysavarna­félagið þyrfti að gera ráðstafanir vegna þessa slyss, þar sem mörg skip voru þarna i grenndinni og kom Narfi mjög fljótt á vettvang. Hamranes var tryggt hjá Almennum tryggingum og i morgun hófust sjópróf í málinu og kemur þá væntanlega eitthvað fram sem skýrir þetta sjóslys. Það er ekki oft sem hægt er að birta myndir af skipi frá því að það er að byrja að síga í sjó og þar til það er horfið af yfir­borðinu. En á hér á síðunni, er auðvelt að gera sér í hugarlund hvernig þetta hefur gengið fyrir sig eftir að sjórinn fór að fossa inn i skipið. Það byrjar að síga eftir því sem það þyngist og síðan fer það að hallast. Það þyngist stöðugt meira að aftan­verðu og brátt fer að flæða yfir skutinn. Og þrátt fyrir hetjulega baráttu þessa gamla aflaskips hefur Ægir yfir­höndina eins og svo oft áður. Áhöfnin getur ekkert gert til að afstýra slysinu og síðast er það aðeins stefnið sem rís hátt upp úr sjó og er það síðasta kveðja togarans sem lengi bar nafn þess fræga kappa Egils Skallagrímssonar.

Alþýðu­blaðið birti frétt þann 24. júní 1972 um sjóprófin sem gerð voru vegna Hamraness en þar kom í ljós að líklegast hafi heimagerð sprengja sprungið um borð í skipinu og þar af leiðandi sökkt því. 

HAMRANESINU SÖKKT MEÐ HEIMATILBÚINNI SPRENGJU?

Sjóprófunum vegna Hamraness er lokið að mestu og er nú talið fullvist, að togarinn hafi sokkið vegna sprengju sem sprakk um borö i honum, en ekki utan hans. Í gær komu til yfirheyrslu við réttar­höldin Rudolf Axelsson, lögreglu­þjónn og sprengju­sérfræðingur, og staðfesti hann í öllu það, sem Helgi Hallvarðsson, skipherra hafði sagt um sprenginguna. Báðir fullyrða, að hér hafi ekki verið um tundur­dufl að ræöa, heldur einhverja annars konar sprengju, og þá heima­tilbúna, og sú sprengja hafi ekki sprungið utan togarans, heldur um borö i honum. Þessar full­yrðingar þeirra félaga fengu enn betri stað­festingu, þegar skip­stjórinn á togaranum Fylki, sem lenti á tundur­dufli fyrir sextán árum, mætti fyrir réttinum í gær. Allar hans lýsingar á þeim atburði voru gjör­ólíkar þvi, sem haft hefur verið eftir eigendum og skip­verjum Hamraness. Sigurður Hallur Stef­ánsson, fulltrúi bæjar­fógetans i Hafnar­firði, lýsti því yfir i viðtali við Alþýðu­blaðið í gærkvöldi, að hann liti svo á, að sjóprófunum væri að mestu lokið. Hann vildi taka það skýrt fram, að hann gæti ekki og það væri reyndar aldrei gert, að gefa upp niður­stöður eða láta i ljósi nokkuð álit að loknum sjóprófum. Málið verður sent saksóknara ríkisins og kvað Sigurður líklegt, að um það myndu dómstólarnir síðan fjalla. Þar með er lokið einu af umfangsmestu sjóprófum, sem framkvæmd hafa verið á Íslandi

Eigendur skipsins fóru í mál við trygginga­félag þess, Almennar tryggingar því það neitaði að greiða þær 15 milljónir sem skipið var tryggt fyrir. Upphófust heljarinnar réttarhöld sem niður­staða komst ekki í fyrr en Hæstiréttur sýknaði trygginga­félagið alfarið, 1976.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim