Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þingkonan Hanna Katrín slegin óhug: „Ofbeldismenn röðuðu sér upp með öskrum og hótunum“

Hanna Katrín Friðriksson í Serbíu.
Hanna Katrín Frið­riks­son í Serbíu.

„Það fylgdu alls konar tilfinningar með í farte­skinu þegar ég kom heim eftir viðburða­ríka dvöl í Belgrad, serbnesku höfuð­borginni, eftir nokkurra daga dvöl þar í tengslum við EuroPride 2022,“ segir Hanna Katrín Friðriks­son, þingmaður Viðreisn­ar.

Hanna Katrín dvaldi í nokkra daga í serbnesku höfuð­borginni í tengsl­um við EuroPri­de 2022:

„Ég var þar sem einn þátt­takenda í International Human Rights Conference á vegum Civil Right Defenders samtak­anna og skipuleggjenda EuroPride í Belgrad.

Mann­réttinda­ráðstefnan er haldin árlega þar sem EuroPride fer fram og laðar að sér fjölda fólks alls staðar að úr heiminum, rétt eins og önnur dagskrá á EuroPride. Hátíðar­höldin stóðu frá 12.-17. september með yfir 120 viðburðum, stórum sem smáum. Rúsínan í pylsu­endanum átti auðvitað að venju að vera löngu skipulögð Prideganga á laugar­deginum. Þar fóru serbnesk stjórn­völd hins vegar út af sporinu á loka­sprettinum.“

Hanna Katrín segir að „það eru þrjú ár síðan Belgrad varð fyrir valinu sem gestgjafi EuroPride 2022 og skipulagning og annar undir­búningur hefur staðið yfir lengi. Síðustu þrjár vikur hafa hins vegar verið storma­samar. Í lok ágúst tilkynnti forseti Serbíu að EuroPride hefði verið aflýst. Því var samstundis mótmælt af skipuleggjendum en skilaboð serbeskra stjórn­valda voru skýr, þau höfðu aftur­kallað stuðning sinn.“

Heldur áfram:

„Í kjölfarið tóku við mótmæla­göngur gegn EuroPride á vegum serbnesku rétt­trúnaðar­kirkjunnar annars vegar og öfga­þjóðernis­sinna hinsvegar. Við tóku dagar með misvísandi skila­boðum frá serbneskum yfir­völdum. Í mótttöku fyrir erlenda gesti EuroPride að morgni göngu­dagsins lýsti Ana Brnabic, forsætis­ráðherra Serbíu því yfir að hún gæfi leyfi fyrir göngunni og að hún gæti tryggt öruggi allra á götum Belgrad. Gangan fór því fram en vægast sagt við sérstakar aðstæður.“

Hún nefnir að „göngu­leiðinni var marg­breytt og endaði með því að vera örstutt og innan girðingar sem mörg þúsund vopnaðir lögreglu­menn röðuðu sér við. Fáir inngangar inn á svæðið og fjölmörgum var vísað frá af lögreglunni þegar þeir reyndu að komast inn á svæðið. Við inngangana, fyrir utan svæðið, röðuðu ofbeldis­menn sér upp með öskrum og hótunum, og lenti víða saman við lögregluna. Þetta var óhugguleg upplifun svo ekki sé sterkar að orðið kveðið og þá ekki síst að sjá að margir þessara ofbeldis­hópa voru með merki til stuðnings Pútín.“

Hanna Katrín segir líka að „lögreglu­menn voru líka á ferð víða um borgina þar sem ofbeldis­menn höfðu skipulagt óeirðir vegna göngunnar og fleiri tugir ofbeldis­manna voru hand­teknir eftir átök við lögreglu. Því miður stóðst loforð forsætis­ráðherrans um öryggi allra ekki og dæmi voru um árásir öfgamanna á þátt­takendur, jafnvel í nánd við vopnaða lögreglu­menn sem létu sér nægja að horfa á.

Í tilkynningu frá forsvars­fólki EuroPride segir að hátíðin í Belgrad muni fara í sögu­bækurnar sem vendi­punktur fyrir LGBTI+ réttindi í Serbíu og víðar á Vestur-Balkans­kaga:

„Við sýndum að Pride hátíðin er ekki ógn við neinn, og meðan við gengum frið­samlega voru það öfga­hægrimenn, þjóðernis­sinnar og kristnir bókstafs­trúar­menn sem börðust við lögregluna.“

Talið er að um 7.000 manns hafi tekið þátt í göngunni, þar af stór hluti alþjóð­legur þar sem fulltrúar yfir 50 Pride samtaka víðsvegar að úr heiminum tóku þátt í göngunni auk þingmanna og diplómata víða að.“

Hanna Katrín segir að „sá sýnileiki er gríðar­lega mikil­vægur. Okkur er hollt að hafa í huga að þessi barátta er líka okkar. Þau sem berjast fyrir frelsi, fyrir mann­réttindum hinsegin fólks í Serbíu eru í auga stormsins núna – við vitum ekkert hvar hvessir næst. Né hvernig skjólið verður þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“