Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Björn fær týnt veski sitt sent heim frá Kaupmannahöfn eftir keðju góðverka

„Fólk er almennt gott og ábyrgt“

Björn Þorláksson
Björn Þor­láks­son Björn segir frá fal­legri sam­fé­lags­sögu í nýj­ustu Facebook-færslu sinni

Fjölmiðla­maðurinn Björn Þorláksson greinir frá því á Facebook að hann hafi nýverið fengið ánægjuleg skilaboð frá sendiráði Íslands í Kaupmanna­höfn eftir að veski hans týndist í ferðalagi í desember.

Björn segir veskið líklega hafa glatast um borð í flugvél milli Kastrup og Osló. Í því voru meðal annars ökuskírteini, greiðslu­kort og fleira. Í tölvu­pósti frá sendi­ráðinu kom fram að óþekktur velviljaður aðili hefði skilað veskinu á lögreglustöð, þaðan sem málið fór í farveg opinberrar þjónustu.

„Í sendiráðs­bréfinu sagði að einhver velviljaður hefði haft fyrir að skila veskinu á lögreglustöð. Þaðan spann fjöldi góðhjartaðra einstaklinga og opinberra starfs­manna fallegan vef sem endar með því að græna veskið, sem ég keypti á Madeira til að styrkja fátæk börn á þeirri fögru eyju, verður nú sent mér með pósti,“ skrifar Björn.

Að sögn Björns virðist ekkert hafa verið tekið úr veskinu, þrátt fyrir að þar hafi verið reiðufé.

„Mér skilst meira að segja að einn þvældur íslenskur fimm­hundruðkall í veskinu hafi ekki verið snertur!“ bætir hann við.

Í færslunni veltir Björn einnig fyrir sér samfélags­legu samhengi málsins og mikilvægi þess að gleyma ekki mannlegri gæsku í umróts­tímum.

„Í þeirri viðsjá sem nú skekur heiminn og ýmis illvirki í fréttum, hættir sumum okkar í byrjun þessa fallega árs til að gleyma að fólk er almennt gott og ábyrgt,“ skrifar hann og heldur áfram:

„Og annað: Opinber þjónusta hjálpar borgurum að finna sjálfa sig og peninga­veskin í kjölfar ósýnilegra góðverka almennings þegar allt er eins og það á að vera.“

Björn segirst ætla að sér að draga lærdóm af þessari sögu.

„Og þennan morgun líður mér eins og allt sé eins og það á á að vera. Ég ætla að draga lærdóm af þessari fallegu samfélags­sögu og finnst full ástæða til að deila henni áfram...“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul