Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Yfirlýsing frá Öfgum: „Enn einn meinti nauðgarinn sem kemst upp með það í skjóli for­réttinda“

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunn­ars­son.

Öfgar sendu frá sér yfir­lýsingu eftir að ljóst varð að Aron Einar Gunnarsson hefði á ný verið valinn til að leika fyrir Íslands hönd í fótbolta, en hann fékk einnig fyrir­liðabandið aftur.

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar

Svona hljómar yfir­lýsing Öfga:

Í ljósi þess að Aron Einar hefur verið valinn aftur í lands­liðið.

Fólk veltir því fyrir sér hvaða á­hrif þetta hefur á bar­áttuna. Þetta hefur í fyrsta lagi á­hrif á þol­endur og þannig hefur þetta á­hrif á okkur en þetta hefur engin sér­stök á­hrif á bar­áttuna. Bar­áttan rís ekki og fellur með fót­bolta­mönnum. Aron Einar er bara enn einn meinti nauðgarinn sem kemst upp með það í skjóli for­réttinda af því hann stundar tuðru­spark.

Þetta kemur okkur ekkert á ó­vart, við vorum búnar að búa okkur undir þetta. Við höldum bara á­fram okkar striki og ef eitt­hvað er þá kyndir þetta undir eld­móð okkar, enda mikil stað­festing á öllu sem við höfum sagt síðustu 15 mánuði og viljum berjast gegn. Þetta undir­strikar að mann­orðsmorð eru ekki til, slaufunar­menning á einungis við þol­endur og fólk getur því hætt að öskra ,,á að taka menn af lífi án dóms og laga”. Það er ekki slaufun að taka pásu í nokkrar vikur eða mánuði og koma síðan til baka án þess að þurfa svo mikið sem að líta í eigin barm eða axla á­byrgð.

Þetta stað­festir bara að við erum komin stutt og að á bar­áttunni sé þörf. Þetta stað­festir orð okkar um að lífs­viður­væri karla liggur ekki undir þó þeir séu sakaðir um of­beldi. Þetta stað­festir að nauðgunar­menning þrífst innan KSÍ og að þol­endum er ekki trúað. Við sjáum núna skýra af­stöðu karla­lands­liðsins og lands­liðs­þjálfara og okkur finnst þá sann­gjarnt að velta hér upp sið­ferðis­kennd þeirra.

Af hverju trúa þeir ekki þol­endum? Af hverju skiptir fót­bolta­frami og góður árangur í fót­bolta meira máli en að trúa og standa með þol­endum? Hvað með þá innan liðsins sem vilja ekkert með of­beldi hafa, þeir hljóta að vera ein­hverjir? Hvernig á­hrif mun þetta hafa á móralinn? Er mórallinn ekki líka ein­hvers virði?

Ætlum við virki­lega að sýna ungum iðk­endum sem dreymir um að spila fyrir lands­liðið að Aron Einar, sem kærður var fyrir hóp­nauðgun, sé fyrir­mynd? Hvaða skila­boð sendir það?

Þessi á­kvörðun mun fæla aðra þol­endur frá því að skila skömminni og leita réttar síns. Þetta mun vekja upp efa­semdir þess efnis að KSÍ standi með þol­endum. Það er enn­þá langt í land að jafna kynja­hallann innan KSÍ og þessi á­kvörðun hjálpar ekki að kven­kyns iðk­endur upp­lifi öryggi innan fé­lagsins þegar stað­reyndin er sú að flestir þol­endur eru konur. Konur innan hreyfingarinnar eiga rétt á því að vera séðar og að á þær hlustað sem og þol­endur í heild sinni.

Þetta er stærsta æsku­lýðs­stofnun landsins.

For­gangs­röðunin ætti að vera önnur, þar sem öryggi og rödd þol­enda ætti að vega hærra en að moka inn peningum frá FIFA út á vel­gengni meintra of­beldis­manna.

Af hverju er liðinu og þjálf­aranum meira annt um að vernda orð­spor lúins Aron Einars á kostnað þolanda? KSÍ segist standa með þol­endum, sýnið það þá í verki. Hér er til­valið tæki­færi fyrir KSÍ að móta reglur varðandi endur­komu og endur­hæfingu. Fyrsta skrefið á þó alltaf að vera að meintur gerandi viður­kenni brot sín, biðjist af­sökunar og bæti sig. Fyrir­myndir unga fólksins okkar eiga að sýna sam­fé­lags­lega á­byrgð.

Við þurfum sér­stak­lega betri reglu­gerð utan um niður­felld mál þar sem við vitum að niður­felling er ekki það sama og sak­leysi. Munum að einungis lág prósenta mála er byggð á röngum sökum, svo lág að við getum gefið okkur að 95-99% mála séu sönn. Munum að þrátt fyrir þá töl­fræði eru flest mál felld niður og því endur­speglar réttar­kerfið á engan hátt sak­leysi meintra ger­enda.

Að mál séu niður­felld þýðir ekki að meintir ger­endur séu sak­lausir. Það þýðir einungis að ekki hafi verið hægt að sanna sekt meints geranda fyrir dóm­stólum. Niður­felling er ekki sýknun. Niður­felling er ekki efi á því sem gerðist, niður­felling þýðir ekki að við eigum ekki að trúa þol­endum.

Sönnunar­byrði í nauðgunar­málum er mjög þung og því er mjög al­gengt að mál eru felld niður, kyn­ferðis­brot fara fram á bak­við luktar dyr þar sem sjaldan eru vitni.

En réttar­kerfið okkar vegur orð meintra ger­enda alltaf þyngra en orð þeirra sem brotið er á.

Kveðja, Öfgar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“