Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lögreglan boðar skýrslu eftir ástandið á skemmtistað í miðbænum í nótt

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu lofaði í nótt eiganda skemmtistaðar í miðbænum að skrifuð yrði skýrsla um ástandi þar. Enginn af dyravörðu var með réttindi og voru allt of margir inn á staðnum. Annars var nóttin frekar róleg ef marka má dagbókina. Ekki kemur fram hvaða skemmtistaður þetta var.

Ljóst er að lögregla hafði í mörg horn að líta í nótt. Dagbókar­færsla lögreglunar um ástandið í miðsvæðis í Reykjavík í nótt hljóðar svo:

Lögreglustöð 1 Austurbær Vesturbær Miðborg Seltjarnarnes

Tilkynnt um minni­háttar umferðar­óhapp í hverfi 108. Ökumaður grunaður um ölvun við akstur, hann hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa vegna rannsókn þessa máls.

Lögregla hefur afskipti af ökumanni bifreiðar sem ók gegn rauðu ljósi í hverfi 104. Ökumaður blés yfir mörkum, hann hand­tekinn grunaður um ölvunar­akstur.

Tilkynnt um aðila sem var til vandræða í verslunar­kjarna í austurbæ, ekki voru neinar kröfur og því var aðila vísað á brott.

Tilkynnt um geltandi hund í fjölbýlis­húsi í hverfi 170, lögregla fer á vettvang en náði ekki sambandi við húsráð­anda.

Tilkynnt um ógnandi mann sem neitaði að yfirgefa húsnæði í hverfi 105. Aðilinn var áberandi ölvaður þegar lögregla kom á vettvang en hann bregst illa við afskiptum og lemur í lögreglu­bifreið. Aðilinn hand­tekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem vakt­hafandi varð­stjóri ræddi við hann. Að viðræðum loknum var aðilanum ekið til sín heima.

Tilkynnt um líkams­árás í hverfi 105, lögregla fer á vettvang og tveir aðilar hand­teknir og gista fanga­klefa.

Tilkynnt um öldauðan einstakling fyrir utan veitinga­stað í hverfi 108.

Lögregla sinnir veitinga­húsa­eftirliti á sjö veitinga­húsum í miðborginni og kannar réttindi dyravarða. Þrír einstaklingar í miðbænum sinntu dyra­vörslu án þess að vera með tilksilin réttindi. Inni á einum veitinga­stað voru of margir gestir þegar lögregla kom á vettvang. Ábyrðgaraðila kynnt að skýrsla yrði rituð vegna brots á lögum um veitinga­staði og hann látinn vita að ef lögregla kæmi aftur á vettvang og ekki yrði gætt að gesta­fjölda yrði veitinga­staðnum lokað.

Bifreið stöðvuð í hverfi 101 en ökumaður er grunaður ölvunar- og vímuefna­akstur.

Tilkynnt um aðila sem braut rúðu á hóteli í hverfi 101 og var með ógnandi tilburði. Þegar lögregla kom á vettvang gaf hún sig á tal við gerandann, sem reyndist ölvaður og óviðræðuhæfur. Gerandinn hand­tekinn, grunaður um eigna­spjöll. Þegar flytja átti gerandann á lögreglu­stöðina við Hverfis­götu hrækti gerandinn í andlit lögreglu­manns sem sat við hlið hans í lögreglu­bifreiðinni. Gerandinn vistaður í fanga­klefa.

Minni­háttar líkams­árás á skemmtistað í hverfi 101, gerandinn farinn af vettvangi en árásar­þoli kvaðst vita hver gerandinn var. Árásar­þola tjáð að sækja sér áverka­vottorð og panta tíma í kæru­móttöku.

Vegfarandi verður vitni af slags­málum við akbraut í hverfi 108. Lögregla fer á vettvang og rannsakar málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim