Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tvennt fórst í harmleiknum á Skarfaskeri – Jónas dæmdur í fangelsi fyrir að sigla skemmtibát á sker

Föstudags­kvöldið 9. september 2005 sigldi Jónas Garðarsson, fyrr­verandi formaður Sjómanna­félags Íslands, skemmtibátnum sínum, Hörpu, upp á sker á Viðeyjar­sundi. Hann var drukkinn við stýrið og í slysinu létust tvær manneskjur, sambýlis­fólkið Friðrik Ásgeir Hermannsson, 34 ára, og Matthildur Victoría Harðar­dóttir, 51 árs. Fyrir dómi reyndi Jónas að koma sökinni yfir á hina látnu Matthildi og greiddi aðstand­endum aldrei þær bætur sem honum var dæmt að greiða, 10 milljónir króna. Þar að auki hlaut hann þriggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir manndráp af gáleysi.

Jónas var ekki viðstaddur dóms­uppkvaðninguna í Héraðs­dómi Reykja­víkur í júní­mánuði 2006. Þar var hann dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og brot á siglinga­lögum er hann steytti bátnum á Skarfa­skeri með þeim afleiðingum að Friðrik og Matthildur létust.

Fimm voru í bátnum

Jónas festi kaup á skemmtibát í Englandi og sigldi honum til landsins þann 20. ágúst árið 2005. Fékk báturinn heitið Harpa eftir eiginkonu hans, Guðjónu Hörpu Helga­dóttur. Aðfara­nótt 10. september þetta sama ár steytti Jónas skemmtibátnum á Skarfa­skeri á Viðeyjar­sundi á mikilli ferð.

Fimm manns voru í bátnum og létust tveir farþeganna í slysinu, þau Friðrik og Matthildur. Voru þau saman í skemmtiferð til að fagna því að Friðrik, sem var lögfræðingur, hefði flutt sitt fyrsta prófmál fyrir Hæstarétti. Jónas stóð við stýri bátsins og þótti sannað að hann hafi verið drukkinn. Samkvæmt dómi gerði hann ekki ráðstafanir til að bjarga farþegum bátsins, þar á meðal konu sinni og barni. Jónas var ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á siglinga­lögum en hann neitaði stað­fastlega að hafa verið við stjórnvölinn á bátnum þegar hann steytti á skerinu í Kolla­firði. Við réttarhöld vegna málsins reyndi Jónas að koma ábyrgð á slysinu yfir á Matthildi. Jónas greiddi aðstand­endum þeirra Friðriks og Matthildar aldrei þær bætur sem hann var dæmdur til að greiða.

Vildi tryggja öryggi fjölskyldunnar

Auk þriggja ára fangelsis­dómsins, sem stað­festur var fyrir Hæstarétti í maí 2007, var Jónasi gert að greiða aðstand­endum fórnar­lambanna 10 milljónir í bætur. Á meðan hann sæti inni sagðist hann hins vegar vilja tryggja fjárhagslegt öryggis fjöl­skyldu sinnar og því ætlaði hann ekki að borga skaða­bæturnar fyrr en hann væri búinn að taka út refsinguna. Þá bjuggu þau hjónin í einbýlis­húsi sem var skráð á eigin­konuna.

Eins og áður segir sigldi Jónas út á Kolla­fjörð föstudags­kvöldið 9. september ásamt, eiginkonu sinni, ellefu ára syni og vinafólki sínu. Þegar liðið var á nóttina, rétt fyrir klukkan tvö, sigldi báturinn á Skarfa­sker á miklum hraða. Sonurinn var þá sofandi í káetu bátsins en aðrir í stýris­húsinu.

Í dag starfar Jónas enn fyrir Sjó­manna­sam­bandið þar sem hann er titl­aður sem eft­ir­lits­maður.

Skemmtibáturinn var fastur á skerinu í um það bil tuttugu mínútur. Þá var bátnum bakkað í tilraun til að sigla honum skemmdum í höfn. Þegar leit út fyrir að báturinn væri að sökkva hringdi Jónas í Neyðar­línuna. Eftir að hafa siglt í um fjórar mínútur hvolfdi bátnum og ætla má að Matthildur, sem var í káetunni, hafi drukknað þá.

Langt yfir mörkum

Lögreglu­menn á gúmmíbát fundu Hörpu meira en klukku­tíma eftir neyðar­kallið og var þá Jónas hangandi utan á bátnum. Guðjóna, eiginkona hans, og sonur þeirra sátu á kili skemmtibátsins, öll með talsverða áverka. Þá þegar hófst leitin að Friðriki og Matthildi. Lík hennar fannst fljótlega en lík hans ekki fyrr en viku eftir áreksturinn.

Viku eftir áreksturinn voru Jónas og Guðjóna yfirheyrð og höfðu þá réttar­stöðu sakborninga. Talið var að þau hefðu neytt áfengis þetta kvöld en rann­sóknin beindist að því að komast að því hver hefði verið við stýrið þegar báturinn steytti á skerinu en rannsókn lögreglu leiddi í ljós að það hafi verið sjálfur eigandinn. Út frá rann­sókninni var Jónas kærður og síðar ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

Fyrir dómi viðurkenndi Jónas að hafa drukkið áfengi hið örlaga­ríka kvöld. Um nóttina mældust 1,07 prómill í blóði hans sem er vel yfir leyfi­legum mörkum. Jónas sagðist fyrir dómi þó ekki hafa fundið fyrir ölvun og gæti sjálfur metið það hvort hann gæti stjórnað báti verandi búinn að drekka. Hann hafnaði því  að hafa verið við stýrið og sagðist muna atburði kvöldsins þangað til hann lét Matthildi um stjórn bátsins.

Rannsókn á áverkum þeirra sem um borð voru leiddi hins vegar í ljós að Matthildur hefði verið í setustofu bátsins. Töldu dómarar að Jónas sjálfur hefði staðið við stýrið. Björgunar­bátur var geymdur í tösku í vélar­rýminu og virtist sem engar tilraunir hafi verið gerðar til að opna hann. Einnig voru hvorki neyðar­blys né talstöð bátsins notuð.

Friðrik og Matt­hildur lét­ust í slys­inu. Blessuð sé minn­ing þeirra.

Sorgleg saga

Jónas Garðarsson fæddist í Reykjavík þann 8. október árið 1955 og ólst upp á höfuð­borgar­svæðinu. Eftir gagnfræða­próf fór hann á sjóinn og var í siglingum á skipum Eimskipa­félagsins í tíu ár. Um tíma var hann einnig á íslenskum varð­skipum.

Árið 1982 hóf Jónas störf hjá Sjómanna­félagi Reykja­víkur, sem síðar varð að Sjómanna­félagi Íslands. Árið 1991 var Jónas orðinn framkvæmda­stjóri Sjómanna­félagsins og árið 1994 formaður. Einnig hefur hann setið í stjórnum Sjómanna­sambands Íslands, Lífeyris­sjóðs sjómanna, sambands­stjórnar Alþýðu­sambands Íslands og í sjómanna­dags­ráði.

Jónas hefur starfað fyrir Sjómanna­félagið í næstum fjörutíu ár og á sér merkilega en jafnframt sorglega sögu. Í dag starfar hann enn fyrir Sjómanna­sambandið en hann er titlaður sem eftirlits­maður Alþjóð­lega flutningaverkamannasambandisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“