Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Afreksíþróttapar gefur út bók saman: „Ég byrjaði sem uppvaskari“

Bjarni Mark og Hulda Dagsdóttir gefa út bók saman
Bjarni Mark og Hulda Dags­dóttir gefa út bók saman

Hulda Dags­dóttir og Bjarni Mark eru íþrótta­kærustupar sem búa saman í Noregi og þurfa hugsa vel um matar­ræðið vinnu sinnar vegna. 

Eins og gefur að skilja þá þurfa íþrótta­menn að hugsa vel um matar­ræðið en það getur stundum verið erfitt að búa til holla og næringa­ríka rétti. Afreks­íþróttaparið Hulda Dags­dóttir og Bjarni Mark hefur nú ákveðið að deila sínum uppáhalds uppskriftum í nýrri matreiðslubók sem parið skrifaði saman. 

„Bókin byrjaði smá þannig að ég hafði ekki mikið að gera fyrstu mánuðina eftir flutning þar sem að það var erfitt fyrir mig að fá vinnu. Ég byrjaði að pósta aðeins á Instagram og reyna að koma hugmyndunum mínum út. Svo um leið og ég fékk fulla vinnu og byrjaði í hand­boltanum þá einhvern veginn fór tíminn. Bókin er þess vegna búin að vera í vinnslu í rúmt ár, þar sem að við erum búin að vinna smá og smá í henni í einu til þess að gera hana ekki af fljót­færni,“ sagði Hulda í samtali við Mannlíf en Hulda sem spilar handbolta með liðinu Randesund meðan Bjarni, kærasti hennar, spilar knatt­spyrnu með liðinu IK Start ásamt því að læra íþrótta­sálfræði. Þau eru bæði afreks­íþróttafólk en Bjarni hefur spilað þrjá leiki fyrir A-landslið karla og Hulda spilað marga lands­leiki fyrir yngri landslið kvenna í handbolta.

„Ég hef alltaf haft gaman af því að elda, og hef klárlega fengið það frá pabba þar sem hann er besti kokkurinn. En á þeim tíma sem ég bjó í Danmörku vann ég sem kokkur ásamt því að vera í fullu námi og spila handbolta. Ég byrjaði sem uppvaskari, því það var eina starfið sem ég gat fengið á þeim tíma, og vann mig fljótt upp í kokka­starfið. Ég verð bara að segja að þetta var ótrúlega skemmtileg og fáránleg tilviljun að hafa getað þetta. Á Mair’s, þar sem ég vann, fékk ég ennþá meiri áhuga á mat og bakstri og var alltaf að leika mér eitthvað heima í eldhúsinu. Svo kynnist ég Bjarna og hann hafði þá, og ennþá, mikinn áhuga á bakstri, sem hann fékk frá mömmu sinni, sem hann lýsir sem ofur­bakara,“ sagði Hulda en hún hefur aldrei lært neitt sem tengist matreiðslu og algjör­lega sjálflærð.

En af hverju að skrifa bók sem leggur svona mikla áherslu á næringar­fræði?

„Í dag er mikið talað um „macros“ og íþrótta­fólk eða bara venjulegt fólk hefur meiri áhuga á matarræði og næringar­færði en það gerði. Vinkonur mínar frá PS. Árangri eru einmitt með næringar­þjálfun, sem ég hef einmitt verið í, og mæli mikið með, og þar á maður að telja „macros“ yfir daginn, ss fituna, kolvetnin og prótín og fleira sem maður borðar og þá hefði ég haft fullkomið not fyrir svona bók. En við viljum auðvitað koma á framfæri að bókin hentar öllum, og fyrst og fremst er markmiðið að koma með hugmyndir af hollari valkostum þegar kemur að bakstri og elda­mennsku. En fyrir þá sem að hafa áhuga og kannski það sem skilur hana að frá öðrum matreiðslu­bókum, er að bókin inni­heldur uppskriftir sem henta vel fyrir fólk sem telur „macros“ eða vill vita nákvæmlega hvað það setur ofan í sig. Uppskriftirnar innihalda öll næringar­gildi og kaloríur í hverjum skammti, þannig að fólk getur auðveldlega lesið yfir það og séð hvað hentar að hverju sinni.“

En hver er uppáhalds uppskrift Hulda í bókinni?

„Úff, það er erfitt að velja eina uppskrift. Uppáhalds matrétturinn hans Bjarna úr bókinni er „Buffalo kjúklinga tenders og franskar“ og baksturinn er klárlega „sætkartöflu brownie“. Við eldum þessa rétti mjög mikið og eru þeir orðnir að daglegu lífi. Ég elska fisk­réttinn, hann er kannski ekki sá girnilegasti en hann er „my go to“, og líka „creamy kjúklinga pasta­rétturinn“. Ég verð bara að segja tvo. Bakstur, er það klárlega Banana karamellu­kakan, Bjarni fær bara að baka hana, hún er sturluð miðað við hvað hún er „holl“.“

„Við byrjuðum frekar rólega í fyrra að prófa mismun­andi uppskriftir og sjá hvað okkur fannst gott. Við hjálpuðumst mjög mikið að í eldhúsinu en ég sá að mestu leiti um uppsetningu, ljós­myndun og almennt að hlutirnir litu vel út. Bjarni kom meira að bakstrinum og ég meira að elda­mennskunni, en alltaf vorum við samferða. Í byrjun, vorum við með mjög margar uppskriftir og þurftum við því að velja og hafna til að sía út þær bestu og fullkomna þær. Stundum þurftum við að elda sömu uppskrift tvisvar til þrisvar til að ná henni eins og við vildum hafa hana. Þess vegna hefur þetta tekið svona langan tíma, settum okkur bara markmið að taka eina máltíð og einn bakstur í hverri viku þangað til að við kláruðum listann. Svo tók við að setja upp bókina, sem tók ekkert styttri tíma. Erum búin að vera vinna í að setja hana upp í hálft ár, „on og off“, enda nóg annað að gera.“

Hægt er að nálgast bókina í gegnum instagram-síður Bjarna og Huldu. Þá er Hulda einnig byrjuð að blogga en hægt er að nálgast bloggið hennar hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt