Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fríða Hansen með sína fyrstu plötu: „Erfiðast var óvissan um framhaldið“

Fríða Hansen
Fríða Hansen Mynd: Aðsend

Fríða Hansen með sína fyrstu plötu: Gegnum tónlistina upplifir hún sorgina yfir því sem áður var ásamt skilyrðis­lausri ást á því sem verður.

Fríða Hansen hefur að sögn ávallt hugsað stórt, verið metnaðarsöm og ætlað sér að taka lífið alla leið. Sumarið 2020 var allt sett á fulla ferð en þá bárust óvæntar fréttir, en það var laumu­farþegi um borð.

„Það sem mér fannst erfiðast var óvissan um fram­haldið. Ég hélt að það myndi hægja á mér og stoppa mig að einhverju leyti. Ég sá ekki þá hversu mikil gjöf þetta var og hversu mikið ég myndi þroskast og eflast við það að eignast barn. Við vorum ein af þessum heppnu sem eignuðumst „covid-barn“ og ég var hrædd um að við værum ekki alveg tilbúin í þetta mikla og tryllta ferðalag,“ segir Fríða um þennan tíma, sem var hrædd við breytingarnar sem myndu fylgja, og ósátt við morgunógleði og fleiri fylgi­fiska meðgöngunnar.

Fríða Hansen

Fríða segist hafa verið lengi að taka meðgönguna í sátt, en að hún hafi upplifað alls konar tilfinningar – eins og svolítið stjórn­leysi á líkamanum og getunni til að halda áfram áður uppteknum hætti. Á sama tíma var hún þakklát fyrir barnið sem óx innra með henni og fannst henni hún því ekki getað talað um erfiðu tilfinningarnar.

Margir foreldrar tengja við þessar tilfinningar og er það eðlilegt að upplifa allskonar – að eiga góða og slæma daga – enda getur meðganga, fæðing og fyrstu ár í lífi barns verið ein rússíbanareið.

Þessi stórkost­lega framandi og krefjandi tími skilaði Fríðu ekki einungis heil­brigðu barni heldur einnig 6 lögum um þetta tímabil. Lögin gefur hún nú út á stuttskífu, sem ber nafnið „Vaxtar­verkir“.

Fríða Hansen

„Vaxtar­verkir“ er fyrsta breið­skífa söng­konunnar Fríðu Hansen, sem er aðal laga- og texta­höfundur plötunnar. Á plötunni tekst hún á við þá ótta­blöndnu hamingju­tilfinningu að mæta foreldra­hlutverkinu í fyrsta sinn.

„Sögurnar í lögunum fylgja ungri móður fyrstu skrefin. Gegnum tónlistina upplifir hún sorgina yfir því sem áður var ásamt skilyrðis­lausri ást á því sem verður. Í lögunum blundar frum­kraftur fæðingarinnar í bland við ljúfsárar stundir fyrstu áranna með nýjum einstaklingi. Að vaxa úr grasi er ekki sársauka­laust en nýir fætur geta fetað gömul spor,” segir í frétta­tilkynningu söng­konunnar.

Nú rúmum tveimur árum seinna horfir Fríða til baka með gleði í hjarta þar sem hún segir lífið hafi orðið enn betra eftir að sonur þeirra kom í heiminn. Fríða fór að forgangs­raða tímanum sínum betur og reynir að nýta þann tíma sem hún hefur til þess að koma því sem hún vill í verk. Á meðgöngunni efldist hún í trúnni á tónlistina sína og hóf að gefa út frumsamið efni, og lögðu þau fjöl­skyldan svo land undir fót þegar sonur þeirra var aðeins 6 mánaða og eyddu nokkrum mánuðum í reið­kennslu og annarri hesta­tengdri vinnu í Evrópu. Í kjölfarið hefur Fríða gefið út enn meiri tónlist, haldið tónleika og unnið með ýmsu frábæru lista­fólki – og haldið áfram að temja og þjálfa bæði hesta og reiðmenn – og má því segja að barn­eignin hafi frekar ýtt henni í að elta drauma sína sem sést vel í nýju plötunni hennar sem má hlusta á hér.

Með henni að plötunni unnu þeir Vignir Snær Vigfússon, sem sá um upptöku og hljóð­blöndun, gítar- og bassaleik ásamt því að spila inn syntha, Benedikt Brynleifsson sem spilaði á trommur og Stefán Þorleifsson sem spilaði á píanó og hljómborð. Sigurdór Guðmundsson hljóm­jafnaði plötuna og Sam Berdah sá um vínyl­skurð. Vínyl­platan var svo framleidd hjá RPM Records í Danmörku. Hún verður fáanleg á vel völdum sölu­stöðum í næstu viku.

Hægt er að fylgja Fríðu á samfélags­miðlum hennar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt