Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Spyr hvort stjórnin sé stikkfrí: „Ríkisstjórninni ber að stíga inn og leggja myndarlega í púkkið“

Guðmundur Árni Stefansson bæjar­fulltrúi og vara­formaður Samfylkingarinnar – Jafnaðar­flokks Íslands, spyr einfald­lega hvort ríkis­stjórnin sé stikk­frí í kjara­deilunum:

„Hvernig er unnt að höggva á hnútinn í kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífsins? Það virðist langt til lands og harkan færist í aukana með áformum atvinnu­rekenda um verkbann á 20 þúsund félaga verkalýðs­félagsins. Það er olía á eld í þessari kjara­deilu.“

Hann bendir á að „vissulega er þrengra um vik um nýjar lausnir, þegar fyrir liggur að 80 þúsund launa­manna hafa þegar samþykkt kjara­samning; fólk í Starfs­greina­sambandinu og Verslunar­manna­félaginu. Þegar atvinnu­rekendur eru síðan farnir að kalla eftir laga­setningu á verk­fallið og kjara­deiluna, þar sem Alþingi setur lög sem banna verkföll, þá er í óefni komið.“

Hann bætir því við að „ekki er ósennilegt að stuðningur við slíkt sé að finna í herbúðum Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokksins, en vart verður því trúað fyrirfram að Vinstri grænir taki slíkt í mál. Þar er þó litla staðfestu að finna eins og dæmin sanna.“

Guðmundur Árni telur að „flestir hljóta að vera sammála því, að lægstu laun á landinu duga engan veginn fyrir fram­færslu. Það er óviðunandi. Úr því þarf að bæta. En það er unnt að gera með fleiru en krónutölu­hækkunum og breytingum á launa­töxtum. Og kem ég þá að kjarna máls. Svo virðist sem sitjandi ríkis­stjórn sé algjör­lega stikkfrí í þessari kjara­deilu og er á hliðar­línunni eins og hver annar áhorfandi. Það er óviðunandi.“

Hann bendir á að „ríkis­stjórninni ber að stíga inn og leggja myndar­lega í púkkið. Nokkrar leiðir eru færar í því efni.

Ein er sú að setja á leiguþak eða leigu­bremsu, sem tryggir stöðu og kjör leigjenda í landinu. Þetta hefur jafnaðar­fólk kallað eftir, sem og verkalýðs­hreyfingin, en ríkisstjórninin skellt við skolla­eyrum. Þessi aðgerð skiptir máli. Hún kostar ekki peninga úr ríkisstjóði.

Önnur leið er jákvæð inngrip í húsnæðis­kerfið; kerfi sem er nú um stundir venju­legum launa­manni fullkomlega ofviða. Fleiri leiðir eru færar en pólitískan vilja þarf til.“

Guðmundur Árni segir að lokum að „þessi aðkoma ríkis­valdsins myndi einnig greiða fyrir komandi samningum við opinbera starfs­menn og starfs­menn sveitar­félaga. Sem og bæta í nýgerða samninga. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa til ríkis­stjórnarinnar að verkin verði látin tala. Það er að vísu eitthvað sem sjaldan sést, því sitjandi ríkis­stjórn og forystu­fólk hennar virðist hafa þann einasta metnað að sitja meðan sætt er. Ágrein­ingur er um minni og stærri mál og þau eru „leyst“ með aðgerðar­leysi. Það virðist þegjandi samkomulag um að gera sem minnst. En nú er ekki í boði að vera stikkfrí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim