Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Júlía er hagsýn og heilsusamleg – Frystir alla afganga

Neytandi vikunnar er Júlía Magnúsdóttir. Júlía er heilsu­markþjálfi, næringar og lífsstíls-ráðgjafi, rithöfundur, heilsu­kokkur og stofnandi Lifðu til fulls heilsu­markþjálfun. Fyrir 10 árum stofnaði hún Lifðu til Fulls og hefur síðan hjálpað þúsundum kvenna að losna við sykur­púkann, fyllast orku, léttast og líða vel í eigin líkama með breyttum lífsstíl og bragð­góðum mat.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni eftir fremsta megni að versla einu sinni í viku fyrir heimilið. Það gengur hins vegar ekki alltaf upp því eins og við vitum að þá er oft bara ekki allt til í búðinni þegar maður fer og svo kemur líka fyrir að manni vantar eitthvað ferskt heima í miðri viku.

Svo reyni ég að hafa viðmiðunar upphæð sem ég versla inn fyrir í mánuðinum. En ég hef fundið fyrir því að það er ansi auðvelt að leyfa matar­reikningum að hækka ört ef maður fylgist ekki með. Ég er núna að nota app sem heitir Budget til að halda utan um matar­kostnaðinn og leyfir það mér að fylgjast með hversu mikið ég hef eytt og hvað ég á mikið eftir, sem mér finnst hjálpa mér.

Ég kaupi egg beint frá bónda í stærra magni, sem bæði eru ferskari afurð og hagkvæmur kostur enda notum við mikið af eggjum á heimilinu.

Ég kaupi síðan baunir í poka sem ég legg í bleyti og sýð sjálf, það er mun ódýrara en að kaupa soðnar baunir í dós. Jú það tekur um það bil 90 mín að sjóða baunir en ég geri það einu sinni á nokkra mánaða fresti  (ég sýð yfirleitt tvær sortir í senn) og fæ um 8 til10 skammta frá 500 króna poka sem ég frysti í stað þess að kaupa einn skammt í dós af lífrænum soðnum baunum á 300 til 500 krónur. Að sjóða baunir sjálf fer líka miklu betur í meltinguna.

Annað sem ég geri er að “meal preppa” og ákveða sirka hvað verður í matinn út vikuna. En ef maður á góðan mat heima sem er annaðhvort tilbúin eða tekur enga stund að vippa saman getur það fyrir­byggt að maður endi á skyndi­bita í miðri viku því maður er of latur að elda. Fyrir áhugasama má sækja matar­skipulag mitt hér. (https://lifdutilfulls.lpages.co/matarskipulag/ )

Svo finnst mér mjög sniðugt að frysta afgangs pottrétti, súpur, brauð, kínóa, því bæði er þægilegt að grípa þegar maður nennir ekki að elda eða er knappur á tíma og svo getur það minnkað matarsóun.

Millimál getað verið dýr þannig ég undirbý einu sinni í mánuði eitthvað eitt sem ég fæ mér yfir mánuðinn, til dæmis orkukúlur https://lifdutilfulls.is/sukkuladikulur-a-innan-vid-4-min-thu-verdur-ad-profa/ )eða granola (https://lifdutilfulls.is/granola-med-kokosflogum-hindberjum-og-blaberjum/ ). Þetta tekur alls ekki langan tíma þegar maður er komin upp á lagið með það.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já ég geri það. Ég flokka plast og pappír og þetta sem flest okkar gera.

Ég nota til dæmis mikið endur­nýtanlega silikon­poka í stað plastpoka. Ég á nokkra svoleiðis og frysti pottrétti, súpur og fleira í því. Svo nota ég krukkur mikið í stað þess að kaupa plastbox.

Sniðugt að endurnýta þessar krukkur, sem maður fær til dæmis utan um kókos­olíur, fyrir allskonar fræ.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Mér finnst gaman að velja og gefa íslenskt og reyni það ef ég mögulega get.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Allt sem tengist bætiefnum og heilsu­vörum.  Mér finnst það ofboðs­lega freistandi að bæta við og ég elska að eiga úrval og rótera á milli.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, hvernig við skiljum jörðina eftir fyrir komandi kynslóð er mér mjög mikilvægt. Ég geri mitt fremsta að endur­vinna og minnka mengun/sóun. Næsta skrefið hjá mér er að kaupa rafmagnsbíl, en ég er núna á hybrid sem er bæði rafmagns og bensín.

Að lokum deilir Júlía með okkur heilsu­samlegum uppskriftum sem má sjá hér:

https://lifdutilfulls.is/
https://www.facebook.com/LifduTilFulls/
https://www.instagram.com/lifdutilfulls/

Ókeypis rafbók með uppskritum af sektar­lausum sætindum, meðal annars uppskrift af brownie, ostaköku og fleira sem einstaklingar getað sótt: https://lifdutilfulls.is/sektarlaus-saetindi/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim