Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Halldór Benjamín Þorbergsson er „fulltrúi 5 til 8 ríkustu fjölskyldna á Íslandi“

Myndin er samsett.
Myndin er sam­sett.

Hlað­varpið Ein pæling fékk Gunnar Smára Egilsson í viðtal þar sem margt forvitnilegt kemur fram, eins og búast má við úr þeim ranni.

Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Sig­tryggur Ari Jóhanns­son.

Gunnar Smári segir viðhorf íslenskra atvinnu­rekenda verra en þræla­haldara og að viðhorf Samtaka atvinnu­lífsins til láglaunafólks sé lakara heldur en viðhorf Rómverja forðum til þræla sinna.

Róm­verjar fóru ekki vel með þræla sína.

Gunnar Smári segir að áður hefðu verið „lög um að atvinnu­rekandinn þyrfti að tryggja endurnýjun vinnu­aflsins. Það mætti ekki eiga þræl og hafa hann úti þannig að hann veiktist og dræpist. Þetta siðferðis­viðmið sem að þræla­haldarar höfðu virðist bara vera fallið í SA.“

Þá gagnrýnir Gunnar Smári fjölmiðla; segir að í stjórnmála­þáttunum sé saman komið „eitthvað elítulið, ekki bara í Silfrinu heldur einnig í Viku­lokunum, kallað inn í frétta­tíma, farið á staðinn og talað við hátekju­fólk sem hefur rosalega þungar áhyggjur af því að verka­maðurinn eigi fyrir mat út mánuðinn.

Þetta fólk fær bara æðislegt platform í íslensku samfélagi og við látum eins og að þetta sé siðlegt. Ef ég væri frétta­stjóri Ríkis­útvarpsins, þá myndi ég segja að við getum talað við Halldór Benjamín svona þriðja hvert ár. Af því að Sólveig Anna er fulltrúi 21.000 manna og Halldór Benjamín er í ólýðræðislegum samtökum sem heita Samtök atvinnu­lífsins þar sem fyrirtæki sem að borga mest til félagsins hafa hæstan atkvæða­rétt. Þannig hann er raun­verulega fulltrúi svona 5-8 ríkustu fjöl­skyldna á Íslandi.“

Halldór Benjamín.

Bætir við:

„Í alvöru, afhverju erum við með þessa svið­setningu, eins og að Halldór Benjamín sé einn hluti af samfélaginu og Sólveig Anna annar hluti af samfélaginu. Halldór Benjamín er svo lítill minni­hluti, það er svo fráleitt að færa þessu fólki völd í lýðræðis­samfélagi þar sem allur almenningur á að hafa jafnan aðgang.“

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Spurður hvort hann sé að meina að Samtök Atvinnu­lífsins komi verr fram við sitt vinnuafl heldur en Rómverjar við sína þræla segir Gunnar Smári:

„Hefurðu séð tölur um örorku á seinni tíma starfs­ævinnar? Hefurðu séð tölur um hversu stór hluti er bara að gefast upp útaf því að líkaminn brestur útaf vinnu­þrælkun? Og eigum við bara að láta eins og að þetta sé ekki svona? Það er bara staðreynd að í íslensku samfélagi er fólk, sem Halldór Benjamín er að reka áróður fyrir, sem gengur á þrek og heilsu fólksins sem að vinnur þar. Fólks sem hefur ekki í nein hús að venda. Það verður að eiga í sig og á. Og verður því að gangast undir hinn vonda þrælasala sem lætur það ekki hafa nóg að borða og né húsnæði. Þetta er bara staðreynd í íslensku samfélagi. Og ég skil ekki af hverju við látum eins og að þetta sé ekki svona.“

Gunnar Smári segir að endingu að þessum raun­veruleika sé haldið fyrir utan hina almenna umræðu í samfélaginu:

„Þannig að við göngum á þrælana. Brjótum þau niður þannig að þau geta ekki verið þrælar eftir fimmtugt, en það má ekki ræða þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim