Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Guðmóðir Vilhjálms prins sagði af sér eftir rasísk ummæli: „Nei en hvaðan kemurðu raunverulega?“

Drottningin og lafðin rasíska
Drottn­ingin og lafðin rasíska

Buckingham-höll staðfesti í dag að Lafði Súsanna Hussey (e. Susan) hafi sagt upp störfum við hirð Karls III Bretlands­konungs, eftir að hafa orðið uppvís af „mjög sorglegum ummælum“ í samtali við formann góða­gerða­samtakanna Sistah Space, Ngozi Fulani við konunglega athöfn í vikunni.

Hin breska Ngozi Fulani

Lafði Súsanna hefur beðist afsökunar að sögn BBC og sagt upp störfum eftir að hafa spurt breskan formann góðgerða­samtaka, hvaðan hún væri „raun­verulega“ en hún er dökk á hörund.

Ngozi Fulani, stofnandi góðgerða­samtakanna Sistah Space, var spurð ítrekað um uppruna sinn á góðgerðar­viðburði í höllinni á þriðjudaginn. Sagðist hún hafa verið í „algjöru sjokki“ er hún hlustaði á ummæli guðmóður Vilhjálms krónprins.

Höllin hefur sagt ummælin „óásættanleg og afar sorgleg.“

Talsmaður Vilhjálms krónprins sagði að „rasismi á ekki heima í samfélagi okkar. Athugasemdirnar voru óásættanleg og það er rétt ákvörðun hjá viðkomandi að stíga strax til hliðar.“

Lafði Hussey, sem er 83 ára, var náinn trúnaðar­maður Elísabetar Bretlands­drottningar heitinnar og fylgdi henni í jarðarför Filippusar eigin­manns drottningarinnar í fyrra.

Samtalið

Fulani sagði í viðtali við Independent, að vanda­málið væri „stærra en einn einstaklingur. Þetta er stofnana rasismi. Ég var í sjokki eftir að þetta gerðist og allir sem þekkja mig vita að ég læt ekki bjóða mér neitt kjaftæði.“

Hér fyrir neðan má sjá samtalið afdrífa­ríka, eftir minni Fulani:

Lafði SH: „Hvaðan ertu?“
Fulani: „Sistah Space.“
Lafði SH: „Nei, hvaðan kemurðu?“
Fulani: „Við erum með bækistöðvar í Hackney.“
Lafði SH: „Nei, hvaða part Afríku kemur þú frá?“
Fulani: „Ég veit það ekki, þau skildu ekki eftir nein gögn.“
Lafði SH: „Jæja, þú hlýtur að vita hvaðan þú ert, ég dvaldi um tíma í Frakk­landi. Hvaðan ertu?“
Fulani: „Héðan, frá Bretlandi.“
Lafði SH: „Nei, en af hvaða þjóðerni ertu?“
Fulani: „Ég er fædd hér og er bresk.“
Lafði SH: „Nei en hvaðan kemurðu raun­verulega, hvaðan kemur þitt fólk?“
Fulani: „Mitt fólk“, lafði, hvað er þetta?“
Lafði SH: „Ó, ég sé að það verður erfitt fyrir mig að draga úr þér hvaðan þú ert. Hvenær komstu fyrst hingað?“
Fulani: „Lafði! Ég er breskur ríkis­borgari, foreldrar mínir komu hingað á sjötta áratugnum þegar …“
Lafði SH: „Ah, ég vissi að við næðum þessu á endanum, þú ert karabísk!“
Fulani: „Nei lafði, ég er af afrískum rótum, karabískum uppruna og bresku þjóðerni.“
Lafði SH: „Ó, þannig að þú ert frá …“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl
Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“