Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Lögreglan birtir myndband af árásinni á rútu Aston Villa: „Hreinasta heppni að enginn hafi slasast“

Frá árásinni.
Frá árásinni. Mynd: YouTube-skjáskot

Lögreglan í Lancashire í Bretlandi leitar að vitnum að árás á liðsrútu Aston Villa knattspyrnu­félagsins sem gerð var um síðustu helgi. Myndskeið úr öryggis­myndavél hefur verið birt, samkvæmt frétt The Mirror.

Aston Villa sigraði Burnley 3-1 síðastliðinn sunnudag en á heimleið var múrsteini kastaði í framrúðu liðsrútu Villa-manna en öryggis­myndavél í rútunni náði árásinni á myndband. „Atvikið hefði getað verið mun alvarlegra og það er hreinasta heppni að enginn hafi slasast,“ sagði yfir­lögreglu­stjóri Lancashire lögreglunnar, Melita Worswick, þegar mynd­skeiðið var birt opinber­lega. „Bílstjórinn hefði getað slasast á gler­brotunum, sem hefði getað ollið því að hann hefði keyrt á aðrar bifreiðar eða að önnur bifreið hefði getað fengið múrsteininn í sig. Það hefði getað orðið alvarleg slys á fólki, jafnvel banaslys. Þess vegna tökum við þessu svona alvarlega.“

Worswick sagði ennfremur: „Við höfum nú birt myndskeið úr öryggis­myndavél rútunnar og biðjum þau sem kannast við þá tvo menn sem sjást vinstra meginn á skjánum, að hafa samband við okkur. Við áttum okkur á því að mynd­skeiðið er nokkuð óskýrt en annar þeirra klæðist einkennandi fötum og það gæti hjálpað einhverjum að kannast við þá. Það var mikið af fólki á svæðinu þegar atvikið átti sér stað, þar sem sunnudags­umferðin var talsverð og fólk var að yfirgefa knattspyrnu­leikinn á milli Burnley og Aston Villa og við trúum því að þarna úti sem eigi enn eftir að tala við okkur, einhverjir sem sáu hverjir bera ábyrgð á árásinni eða náði þeim á mynd í bíla­mynda­vélinni sinni. Hvaða upplýsingar sem þið kunnið að hafa, komið þeim til okkar.“

Múrsteinninn olli tals­verðum skaða á rútunni en hann lenti á fram­rúðunni. Maður var upphaf­lega hand­tekinn í tengslum við árásina en sleppt stuttu síðar án ákæru, enda kom í ljós að hann tengdist málinu ekkert.

Burnley gaf út yfir­lýsingu í kjölfar frétta af árásinni. Þar stóð: „Burnley Football Club er sogmæddur og hneikslaður að frétta af árásinni á liðsrútu Aston Villa, eftir leik dagsins. Eftir að hafa rætt við Villa er okkur létt að heyra að enginn hafi meiðst í atvikinu. Við fordæmum harðlega þessa hegðun og styðjum Lancashire lögregluna í þeirra vinnu við að finna þá sem bera ábyrgð.“

Hér má sjá mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár