Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Baldur liggur undir ámæli vegna gagnrýni á VG: „Sjálfstæðisflokkurinn er svo til stikkfrír“

Baldur og Atli Þór. Myndin er samsett.
Baldur og Atli Þór. Myndin er sam­sett.

Baldur Þórhallsson stjórnmála­prófessor liggur undir ámæli fyrir gagnrýni sína á Vinstri grænum hvað varðar varnarmál landsins.

Atli Þór Fanndal, fyrrum blaða­maður og núverandi framkvæmda­stjóri samtak­anna Transparency International gagnrýnir Baldur Þórhallsson stjórnmála­prófessor harðlega í nýrri stöðu­færslu á Facebook.

Baldur Þórhallsson sagði í færslunni að Ísland væri að sofa á verðinum gagnvart vörnum landsins. Gagnrýndi hann ríkis­stjórnina og þá sérstak­lega Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra. Sagði hann meðal annars í samtali við Rúv: „Við lítum bara út eins og veikasti hlekkurinn í varnar­keðju Vestur­landa. Vegna þess að allar aðrar bandalags­þjóðir okkar hafa gert endurmat á varnar­áætlunum sínum í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Það höfum við ekki gert.“

Atli Þór, sem vann meðal annars fyrir vefrit VG, Smuguna á sínum tíma, segist í færslunni vera mikill aðdáandi þess að VG sé gagnrýnt en segir gagnrýni Baldurs vera ósann­gjarna og bendir á að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi „raunar alltaf farið með þessi mál og í stað þess að fjárfesta í þekkingu hefur raðað fyrr­verandi ráðherrum og vinum í verkefni og stöður…“

Því næst gefur Atli Þór í skyn að nýleg þings­ályktunar­tillaga þingmanna Sjálfstæðis­flokksins um að setja talsvert fjármagn inn í Alþjóðamála­stofnun þar sem Baldur er titlaður sem rannsóknar­stjóri, hafi eitthvað að gera með það að prófessorinn gagnrýni ekki Sjálfstæðis­flokkinn í færslu sinni.

Hér er stöðu­færsla Atla Þórs í heild sinni:

„Í gær birtu flestir fjöl­miðlar langa frétt unna upp úr einni stöðu­færslu mjög svo byssu­glaðs háskóla­prófessor sem í nokkrar vikur hefur verið að titileita frá því að vera höfundur þess sem kallað er shelter theory og er óþekkt og án viðurkenningar utan Íslands í að vera mikill sérfræðingur um hernað smáríkja. Þessi umbreyting hefur verið afar hröð og aldrei án þess að gripið sé færi á að sparka svolítið í VG fyrir að vilja ekki búa hér til hóp byssu­stráka. Nú er ég sjálfur mikill aðdáandi þess að gagnrýna hið tilgangs­lausa stjórnmálaafl VG en gagnrýni prófessorisins hefur verið afar ósann­gjörn og Sjálfstæðis­flokkurinn er svo til stikkfrír i gagnrýni síðustu vikna.

Það skal reyndar tekið fram að ég er sammála gagn­rýninni að því leiti að skömm er af því hvað Ísland fjár­festir lítið í eigin varnar og öryggis­málum (en er ekki sann­færður um sömu áherslur). Það er hættu­legur leikur og gerir okkur svo vitnað sé í prófessorinn að veikasta hlekknum. Hins vegar skiptir máli að varnar­málin séu ekki gegnum­sýrð af meðvirknis­kúltúrnum íslenska þar sem hlaupin eru heil maraþon til þess að forðast að gagnrýna það stjórnmálaafl sem er eins og mara yfir öllu í landinu.

Hvers vegna gagnrýnir prófessorinn sem nú vill marka sér rými í varnar­málum VG en ekki flokkinn sem fer með þessi mál í gegnum utnaríkisráðuneytið. Flokkinn sem raunar hefur alltaf farið með þessi mál og í stað þess að fjárfesta í þekkingu hefur raðað fyrr­verandi ráðherrum og vinum í verkefni og stöður…

Ég skal ekki segja en í ótengdum fréttum þá vakti þessi þings­ályktunar­tillaga þingmanna Sjálfstæðis­flokksins um að setja talsvert af fjármagni í Alþjóðamála­stofnun athygli mína.

Það mætti nú alveg fjalla jafn mikið um hana og stöðu­færslu á Facebook.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna