Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Runólfur læknir: „Má bara ekki gerast að við búum við þetta ástand langt fram eftir næsta ári“

Runólfur Pálsson forstjóri Land­spítalans og sérfræðingur í lyflækningum og nýrna­lækningum segir ekki hægt að búa við ástandið eins og það er nú á bráða­móttöku langt fram eftir komandi ári.

Komið hefur fram að leggja þurfti um 200 sjúklinga inn á Land­spítala af bráða­móttöku fyrir jólin; metfjöldi en því miður voru öll rúm full­skipuð fyrir.

Samtals þurfti að leggja inn 188 sjúklinga sem leituðu á bráða­móttöku dagana 24. til 27. desember, en á spítalanum eru ekki nema 280 legurými sem voru öll þegar full.

Var bætt við tólf rúma legudeild í gær; náðist að fá starfs­fólk sem flest var sótt á aðrar deildir spítalans.

„Það var mikið um alvarleg veikindi sem gerði stöðuna mjög íþyngjandi á bráða­móttökunni. Og sérstak­lega þegar það skortur var á legurýmum og fólk ílengdist þarna til lengri tíma,“ segir Runólfur í samtali við ruv.is.

Legurýma­skortur er ekki nýr af nálinni; ástandið hefur verið viðvarandi að minnsta kosti síðan um aldamótin. Þá er útskriftar­vandinn af sjúkra­húsinu ekki heldur nýr; þar liggja inni aldraðir sem lokið hafa meðferð en er ekki hægt að senda í önnur úrræði.

Runólfur segir að „heilbrigðis­yfirvöld eru að vinna markvisst að þessu núna. Og ég bind ákveðnar vonir við það. En það sem að hefur haldið okkur á floti og sannarlega gerði það þessa erfiðu daga er okkar öfluga starfs­fólk.“

Fleira starfs­fólk vantar á spítalann. Margir hafa hætt af völdum afar mikils álags í heims­faraldrinum.

„Þess vegna þurfum við að finna aðra lausn að minnsta kosti tíma­bundið. Og það beinist að því að finna einhvers konar biðrými eða skapa sveigjanleg rými fyrir aldraða sem ekki geta verið heima en eru ekki komnir með rými á hjúkrunar­heimili. Þannig að þeir geti vistast þar um ákveðinn tíma; við reynum allt hvað við getum til þess að koma hlutunum í betra horf en það tekur einhvern tíma í viðbót. Það má bara ekki gerast að við búum við þetta sama ástand langt fram eftir næsta ári,“ segir Runólfur Pálsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna