Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hreyfing í máli Gylfa: „Ég mun örugglega ræða þetta innan nefndar“

Njáll Trausti Friðbergsson.
Njáll Trausti Frið­bergs­son.

Fyrsti vara­formaður utan­ríkis­nefndar, Njáll Trausti Friðbertsson, ætlar að óska eftir betri upplýsingum um mál Gylfa Þór Sigurðs­sonar knattspyrnu­manns hjá nefndinni.

Í gær kom fram að óskað hefði verið eftir því að utan­ríkis­ráðherra, sem og hennar ráðuneyti, myndu hjálpa við að Gylfi fengi flutt lögheimili sitt til Íslands.

Eins og alþjóð veit var Gylfi hand­tekinn í júlí í fyrra á Englandi, og er grunaður um kynferðis­brot gegn ólögráða einstaklingi.

Gylfi Sig

Málið hefur verið í rannsókn allan þennan tíma, en Gylfi hefur verið í farbanni frá Englandi síðan þá:

„Þetta er leiðindamál með Gylfa í Bretlandi. Auðvitað er Bretland réttar­ríki með sína dómstóla og fer með sín mál, íslensk stjórn­völd fara varla beint í að skipta sér með beinum hætti að því. Utan­ríkis­ráðuneytið er hins vegar með sína borgara­þjónustu og kemur að með almennum hætti fyrir alla Íslendinga, hvort sem þeir eru þekktir eða óþekktir. Það sem er náttúru­lega leiðinlegt í þessu máli er þessi tímalengd sem er ótrúleg,“ sagði áður­nefndur Njáll í útvarps­þættinum Í Bítinu á Bylgjunni núna í morgun.

Gylfi hefur beðið eftir niður­stöðu lögreglu í fimmtán mánuði og hefur lengd rann­sóknarinnar vakið mikla athygli:

„Þetta eru orðnir fimmtán mánuðir. Auðvitað getur maður líka velt því fyrir sér að atvinnu­manna­ferill í knatt­spyrnu stendur nú kannski yfir í 10-15 fimmtán ár í mesta lagi. Þarna er verið að stytta þann feril mjög mikið nú þegar þetta eru orðnir fimmtán mánuðir og fyrir hvaða manneskju sem er, er það erfitt að standa í þessum aðstæðum í svona gríðar­lega langan tíma. Auðvitað á viðkomandi aðili rétt á því, sama hvernig málið fer, að tala fyrir sínum réttindum, fá bætur eða eitthvað í þá áttina, ef illa hefur verið farið með viðkomandi.“

Þátta­stjórn­andinn Heimir Karlsson bætti við:

„Maður hefur séð aðrar ríkis­stjórnir beita sér fyrir eða hjálpa þegnum sínum sem hafa lent í fangelsum hér og þar um allan heim.“

Njáll segir að málið snúist fyrst og síðast um mann­réttindi Gylfa:

„Ég er ekki löglærður maður, en auðvitað snýst þetta um mann­réttindi og við þurfum að fylgja málinu. Ég mun örugglega ræða þetta innan nefndar og sjá hver staðan er í þessu máli, hvað sé hægt að gera. Mig grunar, miðað við það sem maður hefur kynnt sér í sambærilegum málum í gegnum tíðina, að þarna erum við að vinna með okkar nánustu banda­mönnum eða vina­þjóðum. Þær eru með sitt kerfi. Ég skal svo sannarlega reyna fá betri upplýsingar um þetta í nefndinni og það hvernig farið er með svona mál. Það sem er hins vegar mikilvægt í þessu er að þetta gildir fyrir alla, það er punkturinn sem við verðum alltaf að hafa í huga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning