Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hjartalæknirinn sem gat ekki sofið

Við Greifafoss í Eyvindarfirði.
Við Greifa­foss í Eyvind­ar­firði. Mynd: Reynir Traustason.

Í litlu tjald­borginni á Ófeigs­fjarðar­heiði færðist kyrrð öræfanna smám saman yfir. Fátt rauf kyrrðina annað en brak í dýnum þegar þreytt göngu­fólkið velti sér til að finna rétta legu.En svo tóku svefn­hljóðin við og blönduðust kyrrðinni. Takt­fastar hrotur bárust úr einu tjaldinu. Andvaka hjarta­skurðlæknir í næsta tjaldi. Skyndi­lega hættu hroturnar og lækninum krossbrá þrátt fyrir að vera vanur að glíma við líf og dauða. Hann hélt að nágranni hans í tjald­borginni væri kannski allur. En svo heyrðust hroturnar aftur. Hann róaðist og festi svefn.

Með Fíflum

Ég var í gönguferð með Fíflunum, Félagi íslenskra fjalla­lækna, um heiðina sem til stóð að sökkva í þágu risastórs upptöku­lóns sem átti að verða grunnurinn að virkjun við neðan­verða Hvalá. Fyrirliði hópsins var Tómas Guðbjartsson, hjarta­læknirinn hugprúði. Við kynntumst í gegnum Ferða­félag Íslands. Við vorum með allt á bakinu. Sá ferðamáti gefur manni einstaka sjálfstæðis­tilfinningu. Í bakpokanum var matur til nokkurra daga og allt sem þarf til að leita skjóls fyrir vályndum veðrum vestfirsku heiðarinnar.

Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska.

Við lögðum upp frá Ófeigs­firði og tjölduðum á svæðinu neðan við fyrir­hugaða virkjun sem átti að tryggja birtu og yl og grjótnóga peninga fyrir eigendur sína. Gjaldið var að ósnortnu víðerni yrði sökkt undir risastórt lón. Vatns­miklar ár yrðu að sprænum og fossar ekki svipur hjá sjón. Þetta yrði í lagi vegna þess að skemmdirnar sæjust ekki frá veginum, var haft eftir áhrifa­manni í hreppnum. Við sópum undir teppið. Einn eigenda heiðarinnar hafði sagt að þar væri engan gróður að finna, aðeins urð og grjót sem mætti hverfa.

Tjald­borgin við vatnið.

Eftir góðan nætur­svefn gengum við sem leið liggur upp með Hvalá í blíðskapar­veðri. Ég var með 20 kíló á bakinu en vandist fljótlega þyngdinni. Stígurinn fylgdi ánni framan af. Yfir­þyrmandi fegurð var við hvert fótmál. Við okkur blasti hrikalegt gljúfrið við vatnamót Rjúkanda og Hvalár. Við vissum að ófært var seinasta legginn með fram ánni að fossinum. Skyndi­lega blasti við undur­fagur, kraft­mikill, lágur foss. Það er ekki allt fengið með stærðinni. Eftir að hafa notið návistar við nafnlausa fossinn héldum við upp í fjallið við norðan­vert gljúfrið.

Grein­ar­höf­undur við foss­inn Drynj­anda.

Mesta spennan var að komast í návígi við fossinn Drynjanda sem steypist tugi metra fram af snar­brattri brún og niður í gljúfrið sem hefur orðið til í aldanna rás. Aðkoman að fossinum er einstök að því leyti, að fossinn birtist ekki fyrr en göngu­maðurinn er nánast kominn að honum. En þú gengur á hljóðið og heyrir takt­fastar drunurnar löngu áður en náttúru­undrið birtist í allri sinni dýrð.

Eftir að hafa notið návistarinnar við Drynjanda var haldið áfram upp með Hvalá. Tilgangurinn var að sjá og upplifa svæði sem hugsanlega var að hverfa. Veðrið lék við hópinn. Eftir að við komum upp á heiðina tók við grýtt og gróður­snautt land. Eftir nokkra leit ákváðum við að tjalda á mel við lítið stöðuvatn, ofan við Dagverðardal.

Hjarta­lækn­ir­inn Tómas og Dagný kona hans.

Yfir morgun­verðinum við spegilslétt vatnið á Ófeigs­fjarðar­heiði var óhljóðum næturinnar lýst í léttum dúr. Undir­ritaður var auðvitað sá sem rauf þögnina í óbyggðunum með þessum afgerandi hætti. Á sama tíma og mér sárnaði nærgöngul lýsing hjarta­læknisins á hrotum mínum þótti mér vænt um að einhver bæri þá umhyggju fyrir mér að hrökkva við þegar lífs­mörkin dvínuðu. Tómas hjarta­læknir hóf þegar greiningu vandans.Ég gerði honum grein fyrir því að árum saman hafði ég barist í gegnum dagana örþreyttur og þá gjarnan leyst málin með því að leggja mig um miðjan dag með tilheyrandi skammar­tilfinningu. Smám saman hafði miðdegislúr orðið nauðsyn­legur. Tómas kvað upp úr um að líklega væri ég að glíma við kæfisvefn. Hann ráðlagði svefn­rannsókn til að útiloka kæfisvefn.Eftir morgun­verð við himin­blátt vatnið tókum við tjöldin niður og pökkuðum saman. Svo var haldið áleiðis í Eyvind­arfjörð. Við fylgdum Eyvind­arfjarðará eftir frá brúnum. Fjörðurinn var inni í þeirri mynd að virkja við Hvalá. Til stóð að eitt þriggja uppistöðu­lóna Hval­árvirkjunar myndi innbyrða Efra- og Neðra-Eyvind­arfjarðar­vatn. Áin yrði þar með ekki nema svipur hjá sjón á ákveðnum tímum ársins. Ítalskur greifi, Felix að nafni, hafði fyrir nokkrum árum keypt fjörðinn á 25 milljónir króna eftir að hafa upplifað dýrðina á ferð sinni í blíðviðri um Strandir. Hann hafði á orði að byggja þar hús og dvelja þar við hvert tækifæri sem gæfist. Sagan segir að seinna hafi hann komið þar þegar kalt var og þoka. Eftir nokkra hrakninga komst hann suður í Ingólfs­fjörð og rómantíkin við fjörðinn var horfin. Seinna gaf hann frá sér vatns­réttindi svæðisins í þágu Hval­árvirkjunar.

Stein­tröllin sem standa vörð um Ófeigs­fjörð og hálendið ofan hans.

Fegurðin var við hvert fótmál á leiðinni niður með ánni. Fossarnir birtust hver öðrum fallegri. Þessar slóðir eru fáfarnar og fossarnir hafa fæstir nöfn. Þegar sá stærsti blasti við okkur mátti heyra undrunaróp. Fólki þótti afleitt að fossinn hefði ekkert nafn. Sú tillaga kom upp að nefna hann Greifa­foss eftir hinum hrifnæma Ítala sem var búinn að marka fossinum þau örlög að verða að bunu. Skammt neðan við fossinn er að finna eitt fallegasta náttúru­lega tjald­stæði landsins.

Haldið heim­leiðis eftir ferð­ina um Ófeigs­fjarð­ar­heiði.

Hópurinn nálgaðist ós Eyvind­arfjarðarár. Ákveðið hafði verið að Salómon Sig, bátur Strand­ferða, kæmi á tilsettum tíma til að sækja hópinn. Göngubrú er yfir ána nokkru ofan við ósinn þar sem áin er gjarnan illfær neðra.Eftir nokkra bið birtist báturinn í fjarska. Skotið var út gúmmíbáti og hópurinn ferjaður um borð. Að baki var frábær ferð um náttúru sem er engu öðru lík. Við höfðum lært að fegurðin liggur ekki síst í grjótinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim