Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Olíufélögin sviku viðskiptavini um milljarða: – „Eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér“

Þrjú stærstu olíufélög Íslands, sem þá gengu undir heitunum Olíu­félagið Olís, Skeljungur og Olíu­félagið, voru fyrir Hæstarétti árið 2016 dæmd til að greiða 1,5 milljarð króna í sektar­greiðslur vegna ólöglegs samráð á olíuverði hér á landi. Samkeppnis­eftirlitið hélt því þá fram að olíu­félögin þrjú hefðu hagnast um 6,5 milljarð króna með samráðinu.

Olíu­samráðs­málið hófst hins vegar 18. desember árið 2001 þegar lögreglan gerði húsleit í höfuð­stöðvum Skeljungs, Olís og Olíu­félagsins, ásamt starfs­mönnum samkeppnis­stofu, og lögðu þar hald á gögn vegna rann­sóknar á brotum gegn neytendum með víðtæku og ólögmætu samráði um verð­lagningu.

Rannsókn málsins tók þrjú ár og tók til samráðs frá árinu 1993 til 2001. Þremur árum síðar sektaði Samkeppnisráð olíu­félögum um samtals tvo milljarða og 525 milljónir króna en talið var að félögin hefðu hagnast um 6,5 milljarða króna á samráðinu. Olíu­félögin vísuðu málinu til áfrýjunar­nefndar samkeppnis­mála sem úrskurðaði að sektin skyldi lækkuð í einn og hálfan milljarð króna.

Olíu­fé­lögin þrjú höfðu meðal ann­ars sam­ráð um verð­lagn­ingu á fljót­andi elds­neyti, gasi, smur­olíu og tengdum vörum.

Sektin felld niður

Í október 2004 komst Samkeppnisráð, forveri Samkeppnis­eftirlitsins, að því að Olís, Skeljungur og Olíu­félagið hefðu framið mjög alvarleg brot á samkeppnis­lögum, með ólögmætu samráði sín á milli um verð á olíu. Úrskurðar­nefnd áfrýjunar­nefndar samkeppnis­mála komst í kjölfarið að þeirri niður­stöðu að sekta félögin þrjú um 1,5 milljarð króna.

„Eng­um blöðum er um það að fletta, að þetta var ólög­mætt sam­ráð og eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér. Það er ekki hægt að svindla meira á sam­keppni en með sam­ráði,“ sagði Heim­ir Örn Her­berts­son, lögmaður Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins, þegar málið var fyrst tekið fyrir í héraðs­dómi.

Eftir langa máls­meðferð var loksins úrskurðað fyrir héraðs­dómi í mars 2012 að félögin hefður haft með sér ólögmætt samráð en sekt félaganna felld úr gildi þar sem brotið hefði veirð á andmæla­rétti olíu­félaganna í máls­meðferðinni. Lá fyrir að olíu­félögin hefðu haft með sér ólöglegt samráð en ekki hefði verið hægt að sakfella eða sekta þau þar sem málið hefði bæði verið rannsakað af lögreglu og samkeppnis­yfirvöldum.

Skiptu markaðnum á milli sín

Við þessa niður­stöðu gat Samkeppnis­eftirlitið ekki unað og skaut málinu því til Hæstaréttar. Málinu var hins vegar aftur vísað til héraðs­dóms, vegna verulegra galla á mála­tilbúnaði og höfðuðu olíu­félögin þrjú ný dómsmal sem enn miðuðu að því að fá úrskurði áfrýjunar­nefndarinnar, um 1,5 milljarða sektar­greiðslu, hnekkt.

Það var svo árið 2016 sem Hæstiréttur féllst loks á það með samkeppnis­yfirvöldum að olíu­félögin hafi framið mjög alvarleg brot á samkeppnis­lögum og að hæfilegar sektir félaganna skuli nema samtals 1,5 milljörðum króna.

Samráð olíu­félaganna var margskonar og stóð yfir að mati Samkeppniseftirlitisins frá óslitið frá árinu 1993 til ársloka 2001. Höfðu þau meðal annars samráð um um verð­lagningu á fljótandi eldsneyti, gasi, smurolíu og tengdum vörum. Auk þess höfðu olíu­félögin með sér umfangs­mikið samráð um gerð tilboða í tengslum við formleg útboð en dæmi um þolendur þessa samráðs olíu­félaganna voru Reykja­víkurborg, Síminn og Landhelgis­gæslan.

Olíu­félögin gripu einnig til margs konar aðgerða í því skyni að skipta á milli sín markaðnum fyrir olíuvörur hér á landi. Aðgerðirnar miðuðu að því að skipta á milli félaganna markaðnum eftir landsvæðum, viðskipta­vinum eða eftirsölu og magni. Félögin náðu t.d. samkomu­lagi um að Skeljungur myndi sitja einn að bensín­sölu í Grindavík og þau skiptu með sér viðskiptum, til dæmis á Ísafirði og Stykkis­hólmi.

„Þetta geta ekki verið tilviljanir“

Í áraraðir höfðu verið uppi ásakanir um verð­samráð milli olíu­félaganna á Íslandi. Neytenda­samtökin kærðu olíu­félögin til Samkeppnis­stofnunar árið 1997 en sú rannsókn dróst í fjögur ár. „Í minni tíð sem viðskipta­ráðherra var þessi skipting ekki hafin nema hvað að á stöku stað voru olíu­félögin öll þrjú með eina stöð. Nú virðist þetta breytt og aðeins eitt félag annast bensín­söluna á hverjum stað. Og ekki bara það heldur eru allar verð­breytingar hjá olíu­félögunum ávallt upp á krónu þær sömu og líka timasetning þeirra,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, fyrr­verandi viðskipta­ráðherra, um olíu­samráðs­málið á sínum tíma: „Þetta geta ekki verið tilviljanir með verð­lagninguna. Líkurnar fyrir því að um tilviljanir sé að ræða eru stjarnfræðilegar.“

Eins og áður sagði framkvæmdi Samkeppnisstofnu húsleit rétt fyrir jólin árið 2001 hjá skrif­stofum olíu­félaganna og fjarlægði ýmis gögn til rann­sóknar. Grunur lék á að olíu­félögin hefðu brotið gegn 10. grein samkeppnis­laganna nr. 7/1993 um ólögmætt samráð. Til leitarinnar þurfti heimild dómara. Í kjölfarið kröfðust olíu­félögin þess að öllum tölvu­gögnum sem lagt var hald á yrði eytt þar sem leitin hafi verið ólögleg.

Rann­sókninni lauk í október 2004 með tæplega þúsund blaðsíðna skýrslu þar sem fram kom „að olíu­félögin hafi frá gildis­töku samkeppnis­laga haft með sér yfirgrips­mikið og óslitið samráð um verð, markaðs­skiptingu og gerð tilboða.“ Samkvæmt niður­stöðnum varaði samráðið að minnsta kosti frá mars 1993 til desember 2001 – allan þann tíma sem olíu­félögin höfðu starfað á frjálsum markaði. Hagnaður olíu­félaganna á samráðinu nam í það minnsta 6,5 milljörðum að mati Samkeppnis­stofnunar en líklega hafi heildartap samfélagsins vegna samráðsins hlupið á tugum milljarða.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, fyrir­tækin skipt um eigendur – lyklstjórnendur látið af störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“