Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Þrír nemendur björguðu grátandi dreng í strætó: „Þetta endurvekur trú á mannkynið“

Tom og Harry
Tom og Harry Mynd: Trausti Hafsteinsson

Móðir drengs fékk aftur trú á mannkynið þegar þrír skóla­strákar hjálpuðu 11 ára drengi þegar hann hafði tekið rangan strætó eftir fyrsta skóla­daginn sinn.

Hinn ellefu ára drengur, hafði tekið rangan strætó og færðist sífellt lengra og lengra frá heimili sínu, en þá steig hjarta­gott tríó fram. Drengurinn, sem hafði hvorki síma né pening meðferðis, hafði enga leið til að komast heim til sín í Netherton, Liverpool. Hinn 15 ára nemi, Tom O´Brien tók þá eftir drengnum skælandi og gaf honum 10 pund fyrir leigubíl, á meðan jafn­aldrar drengsins, þeir Harry Campell og Dylan Robson, pössuðu upp á að hann kæmist heim, heilu á höldnu.

Þessu góðverki var deilt meðal fólks á Facebook af móður drengsins en færslan sló í gegn en þúsundir skrifuðu við færsluna og hrósuðu drengjunum. Collette, móðir Harry, sagði að allt varðandi málið hefði „endur­heimt trú hennar á mannkynið.“

Sagði hún: „Það var eigin­maður minn sem sá Harry, standandi fyrir utan húsið okkar, talandi við þennan dreng sem við höfum aldrei séð áður. Harry sagði Dylan að hringja á leigubíl til að sækja hann frá okkar húsi, til að tryggja að hann kæmist heim á öruggan hátt. Svo gekk hann með honum til okkar og beið fyrir utan með honum eftir leigu­bílnum.“

Hún hélt áfram: „Guð blessi hann, þessi litli stráksi var í uppnámi og hafði tekið rangan strætó og þar sem þetta var fyrsti dagurinn hans, þá hefur hann ekki þekkt marga. Ég spurðu Harry hvort hann hefði hitt drenginn og hvernig hann væri og hann sagði mér að hann væri fínn og hefði þakkað honum. Mér finnst þetta bara yndislegt. Ég er mjög stolt af honum. Þetta endur­vekur trú á mannkynið og þessi litli skráksi veit nú að það er gott fólk þarna úti sem mun hjálpa honum.“

Tom sagði kennurum að hann væri bara ánægður að drengurinn hafi komist heim og það gladdi hann að unglingar fái þarna jákvæða umfjöllun. Faðir hans, Kenny, sagðist vera afar stoltur af honum fyrir að vera svo „hugul­samur og hlýr“ sonur.

Hinn 55 ára faðir sagði: „Ég er mjög stoltur af honum. Hann er mjög hugul­samur piltur og frábær persónu­leiki. Hann sagði mér ekki hvað hefði gerst fyrr en seinna um kvöldið þegar hann áttaði sig á að fólk væri að tala um það á Facebook. Hann sagðist hafa verið í strætónum og spurt drengina á sjöunda ári (11. ára bekk) hvernig hefði gengið á fyrsta degi skóla­ársins þegar hann tók eftir dreng sem sat einn og virtist stressaður og í uppnámi og spurði hann hvort eitthvað væri að. Drengurinn sagðist hafa farið í vitlausan strætó og væri að fara sífellt lengra frá heimili sínu. Þannig að Tom fékk hugmynd og sagði honum að fara úr strætónum og gaf honum 10 pund fyrir leigubíl.“

Móðir Dylan, Toni, sagðist hafa heyrt af þessu þegar sonur hennar kom heim úr skólanum. Hún sagði: „Hann kom heim og sagði að það hefði verið strákur sem fór í rangan strætó og hefði verið í uppnámi. Hann sagði mér að Tom hefði gefið honum pening og hvernig hann og Harry hefðu hringt á leigubíl. Ég spurði hann hvernig þeir hefðu þekkt númer til að hringja í og hann sagðist hafa gúgglað það. Ég er mjög stolt af honum. Ég vona að ef sonur minn yrði í sömu sporum, að einhver myndi hjálpa honum.“

Dylan

Dren­girnir hringdu í Delta leigu­bílastöðina en samkvæmt Liverpool Echo rukkaði bílstjórinn ekkert fyrir ferð unga piltsins. Yfir­kennari Holy Family Catholic High School skólans, Matthew Symes sagði: „Þetta er bara yndislegt og þessi byrjun á skóla­árinu setur tóninn fyrir allt annað. Tom er ótrúlega hugul­samur og á alla lund frábær gaur.“

Matthew hélt áfram: „Ég kíkti á hann eftir að hafa fengið fjöldi hringinga frá foreldum sem spurðu hvað hefði gerst. Og hann sagðist ánægður með athyglina því margir 15 ára unglingar fá slæmar umfjallanir í fjöl­miðlum. En hann var mjög ánægður að drengurinn hafi komist heim til sín. En hann hefur með þessu sýnt frábært fordæmi fyrir framan heila rútu af sjöunda bekkingum, sem eru allir stressaðir og kvíðnir í kringum stóru krakkana. Þetta er frábært dæmi um eldri nemanda sem passar upp á þá yngri.“

Fréttin er unnin upp úr frétt The Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár