Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

TikTok tálbeitan afhjúpar aðferð sína í viðtali: „Ég sá bara barnabílstólinn og mér bara blöskraði“

Mynd / Skjáskot úr viðtali Götustrákanna
Mynd / Skjáskot úr við­tali Götu­strák­anna

TikTok tálbeitan mætti í viðtal í hlaðvarps­þáttinn Götu­strákarnir. Þættinum er stjórnað af félögunum Jeppakall69 og Ronna Gonna eða þeim Bjarka Viðars­syni og Aroni Mími. Mannlífi barst myndbrot úr þættinum og þar sést TikTok tálbeitan með bófalega lambhús­hettu og rödd hans hefur verið bjöguð – og kynnir sjálfan sig sem Barna­perrar Exposed. Er nafnið tilvísun í nafnið sem aðgangar hans bera bæði á TikTok og Instagram.

Þátta­stjórnendurnir segja frá því að þeir hafa í margar vikur reynt að fá hann sem gest í þáttinn og fagna því að loksins hafi orðið af heim­sókninni.

Aðspurður hvort áframhald verið á afhjúpun barna­níðinga svarar hann: „Vonandi í fram­tíðinni, en spurning hvað lögreglan og fólk í rauninni segir. Hvort það sé tilbúið að standa við bakið á mér“.

Ertu í smá pásu núna?

„Já, alla vega að hitta þá,“ svarar Barna­perrar Exposed og bætir við að hann hinsvegar stundi það enn að tala við þá.

Hvað ertu búinn að hitta mikið af barna­níðingum?

„Uh sko, ég er búinn að ná níu, held ég. Búinn að hitta tíu eða ellefu,“ og bætir við að hann muni ekki nákvæma tölu.

Hvernig virkar þetta hjá þér, hvað gerir þú til að komast í tæri við barna­níðing á Íslandi?

„Þetta er bara einkamál,“ svarar hann og á við að þetta sé í gegnum aðgang inni á heima­síðunni einkamál.is. „Það er bara einfaldast að gera auglýsingu þar,“ bætir hann svo við.

Hvernig gerir þú svona auglýsingu þar? 

„Sko það yngsta sem þú getur valið er 18 ára. En svo skrifar þú bara í bio: Hæ, ég heiti þetta og er þetta gömul … 12, 11, 13 ára – Og svo set alltaf Snapchat nafnið og þá fæ ég bara friend request hægri vinstri.“

Hann er því næst spurður hvernig fólk nálgist hann og hann svarar:

„Fólk á öllum aldri, bæði karlmenn og konur.“ Hann útskýrir í fram­haldinu að þetta séu allskyns fólk: „Já, bara mamma og pabbi úti í búð.“

Aðspurður hvernig samtölin eigi sér stað svarar hann:

„Þeir halda mest megnis uppi samtölunum. Oftast er ég frekar svona leiðinleg eða leiðinlegur við þá og svona nenni ekki að tala við þá – svona bla bla. Þá verða þeir náttúru­lega alltaf miklu spenntari. Þú vilt miklu meira fá eitthvað sem þú getur ekki fengið.

Hvað ertu gömul á þessum miðlum?

„Yngsta sem ég hef verið er ellefu en svo allt upp í fjórtán.“

Ellefu ára? Er mikil eftir­spurn eftir því á Íslandi?

„Já, á Íslandi“

Langar þig aldrei að beita þessa menn grófu ofbeldi þegar þú hittir þá?

„Eh, það hefur alla vegana verið í eitt skipti þegar ég náði einum sem ætlaði að sofa hjá ungum strák. Ég varð mjög reiður og pínu sár af því að ég sá að hann á sjálfur barn, sem er reyndar stelpa og aðeins yngri – Ég veit ekki alveg hvað hún er, ég held að hún sé níu ára. Ég sá bara barna­bílstólinn og mér bara blöskraði og ég varð bara … já, ég varð mjög reiður þá, sko.“ Hann bætir svo við að reiði hans hafi komið vel fram í mynd­skeiðinu sjálfu.

Nálgast má áskrift að þáttum Götu­strákanna inni á brotkast.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim