Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Beggi Ólafs stendur keikur þrátt fyrir mótlætið: „Ég er örugglega að fara að móðga einhvern“

Bergsveinn Ólafs gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem hann hefur fengið
Berg­sveinn Ólafs gefur lítið fyrir þá gagn­rýni sem hann hefur fengið

Fyrir­lesarinn og rithöfundurinn Berg­sveinn Ólafsson, betur þekktur sem Beggi Ólafs, stendur í lappirnar þrátt fyrir fjöl­málafárið sem varð í kringum umdeild ummæli hans fyrir haustið. Þá fékk hann mikla gagnrýni fyrir færslu sína um karl­mennskuna.

„Ég er að segja það sem ég trúi að sé satt og svo tek ég bara afleiðingunum. Ég var kannski of mikið að einblína að gera öllum til geðs í skrifunum mínum áður, og reyna að höfða til allra. Síðan áttaði ég mig á því, það eru tvær leiðir sem maður getur farið. Maður getur reynt að höfða til allra eða sagt það sem maður trúir að sé satt, þá hugsanlega verður maður ekki allra,“ segir Beggi í hlaðvarps­þættinum Helga­spjallið.

Sjá einnig: Beggi Ólafs hafður að háði og spotti: „Maður á að vera stoltur af því að vera karlmaður“

„Mér líður ekkert vel þegar aðrir eru ósáttir við mig, í grunninn. Ég vil ekki stíga á fæturna á öðru fólki eða að fólk sé ósátt út í mig. En sann­leikurinn og að segja sann­leikann er rótgróið inn í mína sál núna og ég einhvern veginn áttaði mig á því að ef ég segi sann­leikann þá er ég örugglega að fara að móðga einhvern,“ segir hann og tekur fram að hann sé að tala um „minn sannleika.“

„Það er ekk­ert að því að vera karl­maður. Maður á að vera stoltur af því að vera karl­maður, maður á að vera stoltur af því að vera karl­maður. Mitt take er að karl­mennska er dyggð, það er alltof mikið verið að tala niður karl­menn í sam­fé­lag­inu, að þeir séu hluti af ein­hverju kúg­andi feðra­veldi og séu hvítir forétt­indapésar. Það er kom­inn tími til að við tölum karl­menn aðeins upp og unga drengi upp.“

Þetta sagði Berg­sveinn á samfélags­miðlum undir haustinu. Þar kvað við nýjan tón hjá honum en hann vakti síðast athygli í upphafi árs fyrir að birta mynd af sér grátandi á sama samfélags­miðli. Þá sagði hann: „Sterkir menn gráta líka“ og hlaut lof margra.

Sjá einnig: Beggi Ólafs opnar á ástina: „Vá hvað ég get ekki beðið eftir að tríta einhverja prinsessu“

Og Beggi hefur ekki látið gagn­rýnina of mikið á sig fá því hann trúir því að hann sé að segja sann­leikann.

„Það eru tvær leiðir sem maður getur farið. Maður getur reynt að höfða til allra eða sagt það sem maður trúir að sé satt, þá hugsanlega verður maður ekki allra. Mér líður ekkert vel þegar aðrir eru ósáttir við mig, í grunninn. Ég vil ekki stíga á fæturna á öðru fólki eða að fólk sé ósátt út í mig. En sann­leikurinn og að segja sann­leikann er rótgróið inn í mína sál núna og ég einhvern veginn áttaði mig á því að ef ég segi sann­leikann þá er ég örugglega að fara að móðga einhvern,“ segir hann og bætir við

„Allir sem þekkja mig vita hvar ásetningur minn býr og það er kannski ástæðan af hverju mafían náði ekki að sverta mannorð mitt. Því síðustu tíu til fimmtán ár, sama hvar ég hef verið, þá ætla ég að vona það – nei ég veit það – að fólkið sem ég hef umkringst hefur gott um mig að segja og veit hvaðan ég kem. Síðan má færa rök varðandi inni­haldið sem ég sagði, er að ég sagði þetta frekar hvasst. Ég var frekar ákveðinn í mynd­bandinu því þetta var búið að liggja á mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæg áminningu

Tíminn er að renna út
Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt