Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigurður er í líknandi meðferð í Brasílíu þar sem hann á tveggja ára son: „Hann mun deyja hér“

Elva birti myndina á Facebook-síðu sinni. Hér heldur hún um bróðir sinn
Elva birti mynd­ina á Facebook-síðu sinni. Hér heldur hún um bróðir sinn

„Í desember vaknaði hann upp eina nóttina og ætlaði að stíga fram úr en datt strax. Þá kom í ljós að hann var orðinn lamaður,“ segir Elva Hrönn Guðbjarts­dóttir í samtali við Vísi. Maðurinn sem hún talar um er bróðir hennar, Sigurður Bragason, en er hann nú í líknandi meðferð á sjúkra­húsi í Brasilíu. Sigurður, sem er 48 ára gamall,  greindist með heilaæxli síðasta sumar en hefur hann verið búsettur í Rio de Janeiro síðastliðin fjögur ár.

„Siggi var búinn að vera á svolitlu flakki þar á undan en svo kynntist hann ástinni sinni, henni Monu og þau eignuðust lítinn strák, hann Loka sem er í dag tveggja ára,“ segir systir hans. Sigurður hafði þjáðst af miklum höfuð­verkjum í tals­verðan tíma og héldu læknar að um mígreni væri að ræða. „Síðan kemur það í ljós í ágúst á seinasta ári að hann er með tvö æxli í höfðinu, og í haust kom svo í ljós að það voru þrjú önnur æxli, í lungum og nýrum,“ segir Elva og bætir við: ,,Honum var haldið meira og minna sofandi um jólin, og það þurfti að setja slöngu frá höfðinu niður í nýrun vegna þess að hann fékk vatns­höfuð. Ofan á allt þetta greindist hann með lunga­bólgu. Hann var síðan sendur heim daginn fyrir gamlársdag.“

Skjáskot úr mynd­bandi þar sem sjá má allt á floti á heim­ili fjöl­skyld­unnar

Elva segir að bróðir hennar eigi ekki langt eftir. „Hann mun deyja hér á næstu dögum. En það er of dýrt að flytja hann heim, svo hann verður brenndur.  Mona vill fylgja honum síðasta spölinn, og hún hefur aldrei farið út fyrir Brasilíu.“ Enn eitt áfallið dundi yfir fjöl­skylduna aðfara­nótt þriðjudags þegar það flæddi inn í hús fjöl­skyldunnar í Rio. Þá sá Elva sig knúna til að segja fólki frá stöðunni og óska um leið eftir aðstoð á Facebook-síðu sinni. Þeir sem vilja hjálpa fjöl­skyldunni geta nálgast frekari upplýsingar á Facebook-síðu Elvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim