Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Jón Sigurður syngur lag fyrir látna vinkonu: „Ekkert varðveitir minningu jafn vel og músík“

Jón Sigurður og Matu
Jón Sigurður og Matu

Flutningur tileinkaður fallinni söng­drottningu

Í hlaðvarps­þættinum Rúntað á Rucio þessa vikuna leikur Jón Sigurður og syngur lag tileinkað vinkonu sinni, söng­konunni Matu, sem féll frá árið 2017 eftir baráttu við krabba­mein. Lagið heitir Samba em preludio og er ekki valdið af handahófi en þau Matu og Jón Sigurður voru vön að syngja það saman um áraskeið. Það er eiginkona hans, Carmen Montoya Sanchez, sem syngur á móti honum að þessu sinni. 

„Ekkert varðveitir minningu jafn vel og músík,“ segir Jón Sigurður, „og þess vegna var það mér um megn að syngja þetta lag í nokkur ár, ég var meira að segja búinn að gleyma gítar­gripunum, en lífið heldur áfram svo það er ekki úr vegi að reyna gera eitthvað fallegt úr því sem áður var sárt.“ 

Matu, sem í raun hét fullu nafni Lúsía Gallego Ariza, bjó í bænum Almedinilla á suður Spáni og söng fyrst um margra ára skeið í dúett með Paco Pulido. Síðan söng hún í hljóm­sveitinni The Quiet Band frá árinu 2011 til dánardags árið 2017. Hún var jafnvíg á hina ólíkustu tónlist, og söng jazz, rokk, pop, bossa nova sem og bandaríska- og spænska þjóðlaga­tónlist. „Rödd hennar var sérlega falleg, mjúk og sæt, en gat líka verið römm og sterk,“ segir Jón Sigurður. „Hún var ein af þessum söngkonum sem maður heyrði í og sann­færðist um leið að einungis fólk með fallega sál gæti sungið með þessum hætti. Það er kannski ekki hægt að koma almennilega orðum að þessu enda ekki heiglum hent að lýsa englum.“

Paco Pulido, sem söng með Matu allan hennar söngferil, er jafnt tónlistar- og stjórn­málamaður og var meðal annars forseti Cordóba-héraðs, sem telur um 800 þúsúnd íbúa, yfir tvö kjör­tímabil.

Lagið Samba em preludio er tvísöngur, og það samdi Baden Powell en hann var brasilískur gítar­snillingur sem ruddi, meðal annarra, leiðina fyrir bossa nova tónlistar­stefnuna sem lá um víðan heim á sjöunda áratug síðastu aldar. Ljóðið við lagið orti Vinicius de Moraes en hann er oft nefndur guðfaðir þessarar tónlistar­stefnu. Lagið og þessir skraut­legu höfundar þess eru til umræðu í hlaðvarps­þættinum Rúntað á Rucio á vef Mannlífar en hann birtist í kvöld. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti