Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Helga lásasmiður vann 175 milljónir króna í Las Vegas: „Við höldum ró okkar yfir þessu öllu saman“

Helga vann stórt í Las Vegas
Helga vann stórt í Las Vegas

Það vant­aði ekki salt í graut­inn hennar Helgu Love sem vann stóran lottó­vinn­ing árið 1995.

„Við tökum þessu með jafn­að­ar­geði. Ef við værum yngri ótt­ast ég að við hefðum misst stjórn á öllu þessu og hætt að vinna. Við höfum þroskast og núna held ég að við höldum ró okkar yfir þessu öllu saman. Við erum bæði i sömu atvinn­unni og þetta hefur ekki afger­andi áhrif á líf okkar að öðru leyti en því að við keyptum okkur nýtt hús og nýjan bíl,“ sagði Helga Love við DV árið 1995 eftir að hafa unnið stóran lottó­vinn­ing. Hún bjó í Las Vegas með Gerald Love, eig­in­manni sínum, en þau störf­uðu bæði sem lása­smiðir.

Vill læra íslensku

„Ég tala ekki íslensku en mamma reyndi að kenna mér málið þegar ég var barn. Ég var á þeim tíma upp­tekin af öðrum hlutum og hafði engan tíma til að læra málið. Núna hef ég fullan hug á að læra íslensk­una sem er móð­ur­mál mitt. Ég stefni að því að fara í heim­sókn til Íslands næsta sumar,“ sagði Helga en hún hafði árið 1995 aðeins komið einu sinni til Íslands en þá gisti hún hjá frænku sinni árið 1973, þá 17 ára gömul. Þá átti hún hálf­bróður en sá hét Ómar Ein­ars­son sem var skip­stjóri í Keflavík.

„Hún dvald­ist hjá mér í einn mánuð og við ferð­uð­umst vítt og breitt um landið. Hún heim­sótti þá meðal ann­ars Svein­björn Bein­teins­son alls­herj­ar­goða, móð­ur­bróður sinn. Hún Helga og Gerald Love, sem búa í Las Vegas, fengu um 175 millj­ónir íslenskra króna í lottó­vinn­ing. Þau eru bæði miklir áhuga­menn um hesta. Helga, sem á íslenska móður, heldur miklum tengslum við ísi­and og ætlar að koma í heim­sókn næsta sumar. Hún var mjög hrifin af landi og þjóð,“ sagði frænkan við DV en hún vildi ekki koma fram undir nafni.

Mjög ánægju­legt

„Helga er mjög yfir­veguð, greind og hlý. Ég hef tvisvar heim­sótt hana til Banda­ríkj­anna og hún hyggst koma hingað næsta sumar. Þá reikna ég með að við ferð­umst um Vest­firði þar sem hún hefur aldrei komið. Hún hefur haldið tengslum hingað og við skrif­umst reglu­lega á. Það er óhætt að segja að hún sé sannur Íslands­vinur. Það var svo­lítið fyndið að ég fékk bréf frá henni með þessum tíð­indum nú fyrir skömmu en það bréf hafði verið lengi á leið­inni. Það hafði vantað 10 cent upp á póst­burð­ar­gjaldið og bréfið var þess vegna end­ur­sent heim til hennar.“

„Það er mjög ánægju­legt að hún skuli hafa fengið þennan vinn­ing. Ég vona bara að þetta verði þeim báðum til góðs,“ sagði bróðir Helgu um málið í sam­tali við DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Ráðherrann fyrrverandi segir að samstarf við Evrópuríki gæti verið hagkvæmara en að koma upp sambærilegu úrræði hér á landi.
Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni