Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Haraldi loks svarað eftir útilokun hjá Twitter – Elon Musk hæðist að Halla með hláturkörlum

Elon Musk lítillækkar samstarfsmann sinn. Myndin er samsett
Elon Musk lít­il­lækkar sam­starfs­mann sinn. Myndin er sam­sett

„Elon er bærilegur í að reka fyrirtæki, en frábær í að missa peninga og fyrirtaks starfs­fólk,“ tísti Twitternotandi við samskiptum Haralds Þorleifs­sonar og Elon Musk, eiganda Twitter.

Haraldur Þorleifsson eða Halli, stofnandi Ueno og starfs­maður Twitter, hefur verið útilokaður frá samfélags­miðlinum Twitter. Haraldur brá á það ráð í gær að leita svara í gegnum Twitter aðgang sinn þar sem í níu daga bárust engin svör frá höfuð­stöðvum Twitter. Ávarpaði Halli auðjöfurinn Elon Musk beint.

Lokað hafði verið á aðgang Halla að vinnu­grunni hans. Ómögulegt var í fyrstu að ná sambandi við yfirmenn fyrir­tækisins en í nótt fékk hann að endingu svar frá Elon sem spyr hann hvað hann hafi verið að gera hjá fyrir­tækinu. Aðspurður útskýrir Haraldur starfið sitt – sem er svarað með hæðni og hlátur­körlum auðjöfursins. Skömmu síðar barst Halla svar frá starfsmanna­stjóranum um að hann starfi ekki lengur hjá fyrir­tækinu.

Haraldur benti á að það væri óskoraður réttur fyrir­tækja að segja fólki upp. En venja væri að tilkynna uppsagnir – og skaut föstum skotum þegar hann benti á að sá sjálf­sagði siður væri á undan­haldi hjá fyrir­tækinu.

Elon Musk hefur verið mætt með harðri gagnrýni fyrir framgang sinn í samskiptum sínum við Halla og hefur fjöldi fólks skrifað færslur til auðjöfursins. Meðal annars segir einn:

Þér væri nær að googla fyrrum sam­starfs­menn. Hann er tölu­vert meiri maður en þú munt nokkurn tíma vera.

Haraldur er með vöðva­rýrnunar­sjúkdóm og líkami Haralds er að bregðast honum. Í samningum sínum við Twitter var gert samkomulag um að sala Haralds á fyrirtæki hans, Ueno, til Twitter árið 2021 væri leið til að sjá fyrir honum og fjöl­skyldu hans á síðari stigum sjúk­dómsins.

Breski ríkis­miðilinn BBC hefur eftir Haraldi: „Þetta er afar streitu­valdandi. Þetta er eftir­launa­sjóðurinn minn, leið til að sjá fyrir mér og fjöl­skyldu minni þegar sjúk­dómurinn þróast. Að vera með ríkasta mann heimi á hinum endanum og sjá fyrir sér að hann muni hugsanlega ekki standa við samninga er ekki auðvelt fyrir mig að sætta mig við“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim