Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Kristján var skorinn í andlitið í miðbænum: „Ég er heppinn að vera á lífi“

Ingólfstorg um sumar –
Ing­ólfs­torg um sumar – Mynd: Wikipedia

Vinir urðu fyrir lík­ams­árás í mið­bænum árið 1996.

„Þetta var skelfi­leg lífs­reynsla og ég er hepp­inn að vera á lífi. Ef skurð­ur­inn hefði komið tveimur sentí­metrum neðar hefði slagæð farið í sundur og þá væri ég dauður,“ sagði Kristján Bjöm Ómarsson við DV árið 1996 en hann hafði orðið fyrir lík­ams­árás í miðbæ Reykja­víkur nokkrum dögum fyrr.

Kristján var í mið­bænum við Ing­ólfs­torg þegar hópur ung­menna réðst á þá. Sú árás end­aði með því að Kristján hlaut 9 senti­metra langan skurð á kjálk­anum eftir hníf. Lög­reglan hafði ekki haft upp á árás­ar­mönn­unum þegar DV ræddi við Kristján um málið. 

„Við vin­irnir vorum að spjalla saman við Ing­ólfs­torg og báðir blá­edrú. Vinur minn var að tala í GSM- síma þegar ein­hver ungur maður kom aðvíf­andi og ætl­aði að hrifsa af honum sím­ann. Við þekktum náung­ann ekki neitt og báðum hann um að koma sér í burtu en hann hélt áfram að vera með stæla. Vinur minn og þessi náungi byrj­uðu að ríf­ast heift­ar­lega og síðan lenti þeim saman. Þá komu fleiri ung­menni að og allt i einu réð­ust ein­hverjir á mig og hrintu mér í göt­una. Ég missti gler­augun mín og þegar ég reyndi að kom­ast á fætur sá ég mér til hryll­ings að blóðið foss­aði úr and­lit­inu á mér. Ég hljóp í burtu og náði mér í serví­ettur til að setja yfir blóð­ugt sárið. Þegar ég sneri við fann ég vin minn en hann hafði verið sleg­inn með flösku eða glasi í höf­uðið sem var blóð­ugt. Við komumst á lög­reglu­stöð­ina og þaðan vorum við keyrðir á slysa­deild,“ segir Kristján Björn. 

„Maður hefur farið víða erlendis en aldrei lent í eða orðið vitni að svona nokkra. Mér finnst hræði­legt til þess að vita að maður er ekki lengur öruggur um líf sitt í þessu litla sam­fé­lagi. Ég er mjög sleg­inn yfir þessum atburði og mér finnst óhugn­an­legt að ung­menni gangi um og skeri fólk með hnífum að til­efn­is­lausu. Við þekktum ekki einu sinni árás­ar­menn­ina en málið er í rann­sókn hjá lög­reglu og við ætlum að kæra þetta. Ég vil óska eftir því að vitni að þess­ari árás gefi sig fram við lög­reglu og aðstoði við að ná árás­ar­mönn­unum,“ sagði Kristján Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni