Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heiða Rún er til fyrirmyndar: „Ótrúlega margt hægt að gera til að minnka kolefnissporið okkar“

Heiða Rún Sveinsdóttir. Mynd úr einkasafni.
Heiða Rún Sveins­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vikunnar, Heiða Rún Sveins­dóttir, býr á Selfossi ásamt Martin eigin­manni sínum og táningunum, Gabríel Mána og Bryndísi Lilju. Einnig býr á heimilinu mini púðlan hún Ronja. Heiða Rún starfar sem fjölskyldu­fræðingur og ráðgjafi hjá Velferðar­þjónustu Árborgar.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Besta ráðið mitt hingað til hefur verið að senda manninn minn í búðar­ferðirnar frekar en mig sjálfa. Hann er mikill ,,lista-maður’’ og verslar einungis það sem er á innkaupa­listanum hverju sinni á meðan ég virðist alltaf koma heim með mun meira en það sem var á listanum. Annars þetta klassíska, gera matseðil fyrir vikuna og versla samkvæmt honum. Á mínu heimili verslum við sirka 2x i viku, í byrjun viku og fyrir helgarnar. Það hefur reynst okkur betur heldur en ein búðarferð fyrir alla vikuna því oft breytast plön, það eru afgangar sem hægt er að nýta í aðra máltíð og því þarf að breyta matseðlinum. Þegar ég verslaði einu sinni í viku sat ég sat oft uppi með hellings mat í lok viku sem ekki var borðaður og þurfti jafnvel að henda, ég þoli fátt minna en að henda mat. Ég er dugleg að elda úr því sem til er hverju sinni og ef afgangar hafa ekki verið borðaðir daginn eftir smelli ég þeim í frysti í skammta­stærðum og tek með mér í vinnu í stað þess að kaupa mér hádegismat. Ég er farin að frysta nánast allt, og þá meina ég allt. Ef grænmeti hjá mér er að slappast sker ég það niður og smelli í frysti­poka og á nánast alltaf helling af grænmeti í súpur og kássur sem annars hefði verið hent. Ég man eiginlega ekki eftir því hvenær ég keypti grænmeti í súpu síðast. Ég kaupi oft grænmeti á síðasta séns, fullan poka á 50-99 kr. og sker niður í frystinn. Ég safna líka í poka í frystinum hýði, kjarna og afskurði af grænmeti- í raun allt það sem maður sker frá og hendir, og sýð svo niður og bý til dýrindis soð og sleppi því öllum krafti. Ég frysti líka ávexti, það er geggjað að frysta t.d. lime, sítrónur og appelsínur í bátum og skella svo út í vatns­glasið, já eða í partý­drykkinn og nota sem klaka. Aðra ávexti frysti ég og nota út í búst eða bökur. Ég frysti enda af oststykki og aðra osta og ríf svo niður á pizzur. Þegar ég hef farið erlendis tæmi ég yfirleitt ísskápinn og frysti allt sem hægt er. Næsta skref verður að reyna að versla fisk og kjöt í magni beint frá söluaðila þar sem fiskur og kjöt er orðin alger lúxus vara og brennir yfirleitt gat á budduna.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já ég reyni að endurnýta eins og hægt er en betur má en duga skal, ég get algerlega gert
betur í þeim efnum. Þegar ég til dæmis fór að vera meðvituð um allt það plast sem maður er að kaupa á hverjum degi fékk ég nett sjokk. Ég var til dæmis með hamborgara og franskar í matinn um daginn. Frönskurnar og hamborgara­brauðið og salatið voru í plast­pokum, tómatarnir í plastdóstum, agúrkan í plast­vafningi og sósan í plastdós. Þetta er gríðarlegt magn af plasti og einungis ein máltíð. Sem betur fer er plast þannig að hægt er að nýta það aftur og aftur og í þessu tilfelli skolaði ég allar plast­umbúðir og endurnýti á heimilinu. Einnig skola ég t.d. álpappír og bökunar­pappír og nota aftur. Ónýt handklæði klippi ég niður og nota sem fjölnota bómullar­skífur eða tuskur. Ég nota gler­krukkur og önnur ílát undan matvöru fyrir afganga, nesti og boozt í stað þess að kaupa plastílát. Ég skola mjólkur­fernur og nýti til dæmis sem bökunar­form, sem sáningar­bakka eða sem undirpott fyrir blóm. Ég safna endum og öllum afgöngum af brauði og öðru korni, þurrka og myl niður í rasp eða fugla­fóður. Um jól og afmæli safna ég pakka­borðunum af jóla­pökkum og endurnýti næsta ár. Ég hef líka notað litlu hvítu pokana undan lyfjum í apóteki undir t.d. peninga­gjafir, tek límmiðann af eða krassa yfir hann og bý svo til dúsk eða blóm úr servíettu og lími yfir. Ég er nýfarin að láta gera við föt og breyta þeim í stað þess að henda og kaupa ný. Fatnað og aðra hluti á heimili sem ekki er lengur í notkun gef ég áfram í stað þess að henda. Mitt ráð til annarra væri að byrja einhversstaðar, t.d. með því að endurnýta plast­umbúðir og smátt og smátt auka neytenda­vitundina. Það er svo margt sem hægt er að gera til að endurnýta og minnka kolefnis­sporið okkar.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Yfirleitt uppruna, verð og gæði. Við kaup á mat hugsa ég einnig t.d. um magn og reyni frekar að kaupa magn­pakkningar frekar en margar litlar og minnka þannig umbúðir. Þetta á einnig við um snyrti­vörur eins og krem, sjampó, sápur, tannkrem o.fl. Við kaup á fatnaði tel ég mikilvægt að skoða gæði vörunnar, vissulega er fatnaður úr gæðaefnum oft dýrari en endist jafnframt lengur og því bæði ódýrari og umhverfis­vænni þegar uppi er staðið. Ég verð að viðurkenna að við kaup á gjöfum hef ég minna velt þessu fyrir mér, ég hef ég yfirleitt keypt það sem ég veit að viðkomandi langar í. Ég er þó farin að gefa upplifanir og samveru­stundir t.d. miða á tónleika eða í leikhús í auknum mæli sem er bæði umhverfis­vænna og endist lengur í minninga­bankanum.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Þykkum, djúsí, síðum peysum, jökkum og kápum helst sem litríkustum. Af einhverjum sökum þykja mér allar úlpur sem ég hef prufað óþægilegar og nota því mikið peysur og jakka, ég virðist aldrei eiga nóg að slíkum fatnaði. Síðustu kaup voru eiturgræn, síð kápa sem ég dröslaði með heim frá Tenerife um jólin. Í þessum töluðu orðum er ég nánast búin að tala mig inn á nauðsyn þess að eignast bleika og appelsínu­gula mynstraða peysu sem liggur í innkaupa­kerru á ónefndri vefsíðu. Einnig er ég forfallinn vintage safnari og virðist alltaf hafa pláss á litla heimilinu mínu fyrir fallega hluti með sál. Maðurinn minn er nú ekki alltaf sammála kaupunum en þá er ég svo heppin að eiga hana Sigrúnu vinkonu mína að sem deilir þessum áhuga mínum. Ég get alltaf treyst á hana við að styrkjast í trúnni um hversu sárlega mig vanti tiltekin hlut. Ég er því lítið að elta nýjustu hönnunar­tísku hverju sinni en get á móti þrætt nytja­markaði eða endalaust ættleitt fallega hluti frá öðrum. Uppáhalds­hlutirnir mínir hér heima eru einmitt bolla­stell frá ömmu Fíu heitinni og forkunnafagur vintage kuðungs­lampi frá ömmu Gígju heitinni.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Mjög miklu máli. Það er mér eiginlega í blóð borið. Móður amma mín og afi bjuggu alla sína tíð á Ólafs­firði og hjá þeim lærði ég að bera virðingu fyrir náttúru­öflunum. Langafi minn í föðurætt hét Erlingur og var þekktur og virtur fyrir grasa­lækningar. Föðuramma sagði mér oft sögur af honum og um lækningar­mátt grasa, jurta og nátt­úrunnar og sjálfri líður mér hvergi betur en í óspilltri nátt­úrunni. Einnig er pabbi minn mennsk alfræðibók þegar kemur að íslenskri náttúru og þó ég hefði aldrei viðurkennt það sem barn þegar hann þuldi upp hverja einustu þúfu sem við keyrðum framhjá á ferða­lögum þá hef ég smitast af áhuga hans á íslenskri náttúru. Ég vil því leggja mitt af mörkum og reyni það með því að draga úr kolefnis­spori mínu og fjöl­skyldunnar.

Það er svo ótrúlega margt hægt að gera til að minnka kolefnis­sporið okkar og stækka í leiðinni plássið í buddunni. Þó það virðist lítið eða ekki skipta máli þá telur allt þegar uppi er staðið. Ég til dæmis nota mikið möndlu/hnetu/kókos/fræ mjólk en bý hana til sjálf. Í fyrstu hélt ég að það væri svo mikið vesen en það tekur mig yfirleitt um 10 mínútur. Oft virðast hlutir svo ofur flóknir en eru það alls ekki þegar uppi er staðið. Ég til dæmis bjó til marga lítra af fljótandi sápu úr einu sápu­stykki. Í uppskriftinni var sápu­stykki, vatn og glyserin. Þetta orð hefði áður verið nóg til að fæla mig frá, þetta er eitthvað sem ég veit ekkert um=of flókið. Með einu gúgli komst ég að því að þetta fæst í nánast hverju einasta apóteki landsins. Með þessu hugarfari hef ég einnig til dæmis búið til frá grunni krem, varasalva, andlits­tóner, salt­skrúbb, hárnæringu, híbýlailm og svo mætti endalaust lengi telja. Eina sem þarf til er áhugi og nenna. Mikil­vægast að öllu að muna að margt smátt gerir eitt stórt, að gera eitt er betra en að gera ekki neitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim