Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ólafur Ragnar er hundamaður: „Samson er nákvæm eftirlíking af Sámi“

„Já, það er nú eiginlega á ábyrgð Dorritar,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­verandi forseti Íslands, í viðtali við Mannlíf um það hvern ig atvikaðist að hann og eiginkona hans, Dorrit Moussaieff, fengu á sínum tímum hundinn Sám.

„Auðvitað hefur það hjálpað til þegar Sámur kom inn í okkar tilveru þegar við vorum á Bessa­stöðum og svo Samson vegna þess að hann fylgir mér alltaf á morgnana. Svo er það líka hvatning síðdegis að fara kannski með hann aftur. Áður en þeir komu til sögunnar, Sámur og svo Samson, þá fór ég kannski ekki í göngur seinni partinn líka. En nú hafa þær bæst við. Þannig að stundum geng ég sex til átta kílómetra á dag samtals.“

Fyrst kom Sámur. Og svo kom Samson, sem var klónaður. Það er mjög merkilegt.

„Já, það er í senn mjög merkilegt en líka vekur það spurningar um að lækna­vísindin séu komin svo langt á leið að það sé hægt að taka smáhúð og senda hana út til Texas. Svo er hún meðhöndluð þar í einhverri tilrauna­stofu og svo fæðist Samson sem er nákvæm eftir­líking af Sámi. En auðvitað er þetta árangur lækna­vísindanna og líffræði­vísindanna sem við njótum á öðru sviði. En þetta vekur líka spurningar um hvernig við förum með þetta vald. Það hefur líka verið fróðlegt að sjá þessi eðlis­einkenni Samsons sem við þekktum vel úr Sámi. Þá er ég ekki bara að tala um útlitið. Ég er að tala um eðlis­einkenni. Og það vekur í okkar huga spurningar um hvað erfist með erfða­efninu. Er það bara útlitið eða eru það líka áunnir eigin­leikar? Og vísindin segja að það séu ekki áunnir eigin­leikar en þegar maður hefur kynnst annars vegar Sámi og svo Samson þá vekur það upp spurningar,“ segir hann Vðtalið má lesa í heild sinni í helgar­blaði Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis