Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jörundur Ragnarsson féll ofan í hyldjúpa jökulsprungu: „Ég ætla ekki að deyja svona“

Jörundar Ragnarson féll ofan í jökulsprungu árið 2010. Myndin er samsett.
Jörundar Ragn­ar­son féll ofan í jök­ul­sprungu árið 2010. Myndin er sam­sett.

Árið 2010 féll Jörundur Ragnarson, leikari, ofan í jökulsprungu þegar hann var staddur á rjúpna­veiðum með félaga sínum, Hilmi Snæ, í Mývatns­sveit í miklum snjó: „Þetta var í ljós­skiptunum, og ég hafði eitthvað misskilið leið­beiningarnar,“ útskýrir Jörundur og greinir frá því að þeir voru staddir á svæði á Leggja­brjóti sem hann átti ekki að vera að ganga á. 

En Jörundur opnar sig um þessa háskalegu lífs­reynslu í þætti Sigur­laugar M. Jónasdóttur, Segðu mér.  

„Ég var sem sé að labba í miklum snjó og lappirnar eru að detta niður í svona smá holur inn á milli og maður er að hífa sig upp á hnénu. Svo gerist þetta í eitt skipti og ég er að hífa mig upp, á hinni löppinni, og þá hrynur allt undan mér. Þá var ég bara að labba ofan á svona fleka“. 

Fallið var um það bil 8-9 metrar. Jörundur lýsir því að fallið hafi ekki verið frjálst heldur hafi hann verið utan í steinvegg allan tímann, sem tók af honum mesta fallið. 

Aðspurður hvort að hann hafi meitt sig í fallinu. „Jah, bara ég fékk kúlu og braut á mér nögl og fötin rifnuðu öll en nei brotnaði ekki neitt. Heldur lenti ég bara á löppunum, skilurðu“. Jörundur lýsir því að hann hafi lent á grjót­hnullungi sem hafi dottið niður í sprunguna og var um það bil meter og hálfur að breidd. Hnullungurinn hafði skorðast af í sprungunni sem annars var 30 metrar að dýpt.

Lán í óláni 

Jörundur lýsir því hvernig hann hafi teygt sig í símann til að kveikja ljós og kanna aðstæður eftir að hann lenti. „Þegar ég skoðaði í kringum mig þá sá ég bara hyldýpi fyrir neðan mig – Ég sá ekki til botns, beggja megin við steininn sem ég lenti á“.

„Það er rosa mikið adrenalín-rúss,“ útskýrir hann hugsunar­ferlið í aðstæðunum en segist viðkenna að hann hefði sjálfur ímyndað sér að hann yrði í meira panikki. En að hann hafi litið upp og séð gatið þar sem hann datt í gegnum. „Já, ok ég er kominn í vandræði“. 

Án síma­sambands og með ekkert annað meðferðis en 2 – 3 rjúpur  í töskunni og einn Svala leitar Jörundur allra leiða til að komast upp.

Ekki var gerlegt að klifra upp sprunguna en hann lýsir því í viðtalinu hvernig hann nær að þvinga sér upp á milli sprungu­veggjanna. Jörundur kemst þó ekki alla leið upp en þó nógu langt til að ná síma­sambandi. Jörundur hringir í Hilmi Snæ félaga sinn og lýsir fyrir honum aðstæðum og biður hann um að hringja í Björgunar­sveitina.

Hilmir Snær fer því næst að leita að Jörundi, sem að eftir á að hyggja hafi það ekki mjög gáfulegt í ljósi aðstæðna.

Leitin

Jörundur lýsir biðinni niðri í sprungunni. Hvernig hann hafi svo heyrt í rödd vinar síns, sem var hafði verið í um það bil kílómeters fjarlægð frá honum þegar hann hafði náð sambandi við hann. 

Eftir hálftíma bið gat Jörundur heyrt köllin frá vini sínum og farið að kalla á hann til baka. Léttir færðist yfir Jörund á meðan rödd vinar hans hækkaði og hækkaði. En svo fjar­lægðist hljóðið aftur. Jörundur reynir enn að brölta upp og hringja aftur í Hilmi Snæ – sem hafði ekki heyrt í honum köllin. Þá var símtæki Hilmis orðið batteríislaust. 

Vonleysið

Jörundur reynir að ná sambandi við Neyðar­línuna en sambandið er lélegt og í miðjum hama­ganginum berst Jörundi símtal frá barns­móður sinni og þáverandi konu. Með blikkandi mynd af henni og nýfæddu barni þeirra gat hann ekki hugsað sér að svara henni í þessum aðstæðum. Hann klippir ósjálfrátt  að sér höndinni með þeim afleiðingum að hann glutrar símanum og horfir á eftir honum ofan í hyldýpið. Á því augna­bliki grípur hann hræðsla og vonleysi.

„Ef að Himmi finnur mig ekki, þá finnur björg­un­ar­sveitin mig ekki. Ég er hérna með tvær rjúpur og Svala. Ég lifi kannski hérna í tvo daga og svo finna þeir bara beina­grind í vor“

Eftir tvo tíma er Jörundur lurkum laminn, þreyttur og vonlaus og liggur í hnipri á stein­hnullungnum „Ég ætla ekki að deyja svona ég ætla frekar að deyja við að reyna að komast upp,“ segir Jörundur og ákveður að hrista í sig kraft. Hann ákveður að reyna að fara aðra leið sem er áhættu­samir þar sem ef hann skyldi missa fótana að þá myndi fallið verða ofan í hyldýpið. 

Jörundur nær að bjarga sér upp úr holunni. Í gleði­kasti öskrar hann upp yfir sig. Hann sér Hilmi Snæ úrvinda en hlaupandi í um það bil 200 metrum frá sér. Björgunar­sveitin er þá einnig mætt. Í kjölfarið eru gerðar mælingar á sprungunni sem hafðar eru eftir í viðtalinu.

Margoft hefur verið reynt að fá Jörund í viðtal og ræða lífs­reynsluna en hann viðurkennir að atvikið hafi markað hann mikið og sð svo erfitt hafi verið fyrir hann að opna sig án þess að bresta í grát. „Ég vildi ekkert vera að mjólka það í fjöl­miðlum,“ útskýrir Jörundur og fannst það einhver óþarfa athyglis­sýki.

Fékk áfallahjálp

Í langan tíma á eftir fylgdu Jörundi martraðir. „Í þeim var ég að detta og vita ekki hvenær ég myndi lenda,“ og lýsir hann draumunum eins hann vissi aldrei hvenær hann myndi lenda.

Í áfalla­hjálpinni fékk Jörundur að vita að ef einstaklingur kæmist sjálfur úr þeim eða gæti bjargað sér sjálfur að þá teljist áfallið minna, í saman­burði ef til dæmis Jörundi hefði verið bjargað af Björgunar­sveitinni og upplifað algjört bjargar­leysi – og upp á aðra kominn. „Maður sigrast á þessu með að bjarga sér sjálfur. Ég var heppinn með það“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim