Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kærður fyrir tilraun til manndráps – Hlaut opið sár á höfði, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum

Dalskóli.
Dalskóli.

Fimmtugur karl hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, sem og stórfellt brot í nánu sambandi, með því að ráðast aftur og aftur að fyrr­verandi sambýlis­konu sinni og barns­móður, með öxi á bílastæði við Dalskóla í Úlfars­árdal seint á síðasta ári.

Það er héraðs­saksóknari sem hefur gefið út ákæruna; karl­maðurinn hefur sætt gæslu­varðhaldi síðan hann var tekinn höndum þann 29. nóvember síðatliðinn.

Í ákærunni kemur fram að öxin hafi verið með 12 sentí­metra löngu blaði, og að maðurinn hafi slegið konuna með öxinni í höfuð hennar; grýtt henni í jörðina; átt í átökum við hana þangað til hún komst undan; leitaði skjóls inni í skólanum.

Maðurinn ógnaði lífi, heilsu og velferð barns­móður sinnar á afar alvarlegan og sérlega sársauka­fullan og meiðandi hátt, eins og segir í ákærunni.

Hlaut konan opið sár á höfði, einnig brot á höfuðkúpu sem og andlits­beinum; mar og sár á upphandlegg.

Einnig er manninum gefið að sök að hafa unnið skemmdir á bifreið konunnar með öxinni áður­nefndu.

Urðu skemmdirnar það miklar að bíllinn eyði­lagðist hreinlega; eins segir í ákærunni.

Héraðs­saksóknari krefst þess að karl­maðurinn verði dæmdur til refsingar sem og greiðslu sakar­kostnaðar.

Til vara er farið fram á að hann sæti öryggis­gæslu á viðeigandi stofnun, og líka er gerð krafa upp á 4,5 milljónir íslenskra króna í miska- og skaða­bætur fyrir konuna; einnig tvær milljónir króna vegna tjóns á bíl konunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim