Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Martröð fjölskyldu sem varar við hóteli: „Fríið okkar var eyðilagt. Þetta var skelfilegt“

Fjölskyldufrí breskrar fjöl­skyldu breyttist í martröð er þau dvöldu á hótelinu Lydia Mari‘s á Grikk­landi í júlí síðastliðnum. Hótelið hefur neitað þeim um bætur og er fjöl­skyldan ævareið vegna málsins. Breski miðillinn Mirror fjallaði um málið en fjöl­skyldan greiddi tæplega fjögur þúsund pund fyrir dvölina sem var alls ellefu nætur. „Fríið okkar var eyðilagt. Þetta var skelfilegt. Ég hef áður stoppað við á tveggja stjörnu hótelum sem voru betri en þetta. Það eru ekki einu sinni peningarnir sem við erum að pæla í, það er sú staðreynd að við höfum ekki einu sinni fengið afsökunar­beiðni og þau hafa ekki skoðað málið,“ sagði móðirin Kimberley Tooth sem lenti í hremmingunum.  Hún segir að þau hafi fengið kaldan morgun­verð fyrsta daginn sem hafi átt að vera heitur. Þau hafi ekki kippt sér upp við það en þegar þau sneru aftur um kvöldmatar­leytið hafi þau fengið hráan kjúkling. Þau kvörtuðu og töluðu við kokkinn sem hafi tjáð þeim að kjúklingurinn „ætti að vera svona“.

Hrátt kjöt úr mat­salnum

Þegar komið var upp á hótel­herbergi síðar um kvöldið hafi þau fundið fljúgandi maura um allt. Kimberley hafi þá  brugðið mikið þegar hún varð vör við margfætlu skríða yfir andlit dóttur sinnar um miðja nótt. Þegar þau kvörtuðu var þeim tjáð að engin herbergi væru laus svo að það væri ekki möguleiki að flytja þau annað. Afgreiðslu­stúlkan hafi þó boðið þeim að láta eitra fyrir skor­dýrunum.

Marg­fætlan var ekki vel­komin

Kvöldið eftir segir Kimberley að dauð skordýr hafi verið um allt herbergi. Sextán ára dóttir hennar hafi ekki getað sofið og ítrekað lentu þau í því að fá hrátt kjöt í kvöld­matinn. Þegar heim var komið leið tæpur mánuður þar til fjöl­skyldunni barst loksins tölvu­póstur frá ferða­skrif­stofunni en í honum stóð: „Ég sé að þér voru boðin úrræði sem þú hafnaðir. Að þessu sinni munum við ekki geta boðið neinar bætur. Þakka þér fyrir álit þitt“. Ekki liggur fyrir hvort fjöl­skyldan ætli að leita til lögfræðings vegna málsins en eru þau í hið minnsta verulega ósátt með dvölina í Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt