Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Helga Vala segir hatursorðræðu stundaða á Alþingi: „Ég hef miklar áhyggjur“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra telur að samfélagið hér á landi verði að bregðast við í verki við hvers konar haturs­orðræðu sem og afleiðingum hennar. Þingmaður Samfylkingarinnar, Helga Vala Helga­dóttir, hefur áhyggjur af því að slík orðræða sé stunduð í þing­salnum.

Katrín mælti á Alþingi fyrir þings­ályktunar­tillögu um aðgerða­áætlun gegn haturs­orðræðu, en í tillög­unni er lögð áhersla á að efla fræðslu og vitundar­vakningu varðandi haturs­orðræðu í samfélaginu og afleiðingar af slíkri orðræðu.

Vísaði Katrín til þeirra fordóma og haturs­orðræðu sem hinsegin ungmenni hafa þurft að líða.

„Þegar við sjáum slíkt bakslag verða í orðræðunni þá tel ég það vera skyldu okkar að bregðast við í verki vegna þess að löggjöfin ein og sér er ekki nægjanleg. Það er menningin sem þarf að breytast með. Raunar höfum við oft um það dæmi að þegar framsækin löggjöf er samþykkt að það verður bakslag í kjölfarið,“ sagði forsætis­ráðherra.

Í tillögu hennar er gert ráð fyrir því að embættis­mönnum og kjörnum fulltrúum í bæjar- og sveitar­stjórnum verði boðið á námskeið er fjallar um afleiðingar haturs­orðræðu.

Áðurnefnd Helga Vala spurði Katrínu hvers vegna það væri ekki gert ráð fyrir þing­mönnum í þessu samhengi.

„Ég verð að segja að ég hef miklar áhyggjur af því hvernig við leyfum okkur að tala hérna inni. Hvernig við leyfum okkur að kynda undir ýmiss konar skautun og haturs­orðræðu beinlínis. Ekki kynda undir heldur beinlínis ástunda haturs­orðræðu hér í þingsal. Það leyfa ákveðnir þingmenn sér það að mínu mati,“ sagði Helga.

Forsætis­ráðherra sagðist líta svo á maĺið að það væri Alþingis að ákveða hvort þing­mönnum yrði einnig boðið upp á slíkt námskeið er málið fer til umfjöllunar í allsherjar- og menntamála­nefnd.

„Ég myndi fagna því ef þing­nefndin tæki þá afstöðu að það væri rétt að slíku námskeiði yrði sérstak­lega beint líka að kjörnum fulltrúum á þingi. Ég held að það þurfi að vera ákvörðun þingsins sjálfs en ekki framkvæmdar­valdsins að koma með þau tilmæli,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim