Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

„Þetta er sama fólkið og vill alls ekki að neinn sjái hvernig samningur við ESB liti út.“

Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS
Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður SGS Atli Þór skilur ekk­ert í Breið­fylk­ing­unni Mynd: Facebook

Atli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefna­stjóri á skrif­stofu rektors við Háskólann á Bifröst, gagnrýnir í Facebook-færslu það sem hann telur vera tilraun Breið­fylkingarinnar (Starfs­greina­sambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn) til að gera lítið úr samkomu­lagi VR við Samtök atvinnu­lífsins en stéttar­félagið náði samkomu­lagi um fram­lengingu kjara­samninga á síðustu stundu á dögunum. Hann spyr hver tilgangurinn sé með því að halda áfram deilum eftir að samningar hafa náðst.

Atli Þór segist eiga erfitt með að skilja hvers vegna Breið­fylkingin leggi svo mikla áherslu á að sannfæra fólk um að samkomulag VR hafi í raun verið leikrit og að samningarnir hafi ekki falið í sér neinar verulegar umbætur. „En samt er það víst þannig að hálauna­fólkið í VR er alveg ferlega glatað fólk að hafa í samfloti,“ skrifar Atli Þór og bætir við:

„Til hvers að standa í þessu? Samkomulag náðist. Það þarf að kunna að lifa á friðar­tímum“.

Spyr hver sigurinn eigi að vera

Atli Þór veltir því fyrir sér hvernig sigur eigi að líta út í deilunni og hvað sé í raun verið að berjast fyrir. Að hans mati náðu stéttar­félögin góðu samkomu­lagi miðað við aðstæður og aðgerðar­pakki ríkis­stjórnarinnar líti vel út.

Næsta verkefni sé að tryggja að staðið verði við það sem samið var um.

„Hvernig á sigur eiginlega að líta út í þessu stríði um hvað?“ spyr hann í færslunni.

Hann segir samningana sjálfa vera afrek sem allir geti átt hlutdeild í og kallar eftir skýringu á því hvað fáist með því að halda áfram að draga samkomu­lagið í efa.

Atli Þór tekur þó fram að hann sé opinn fyrir því að hann skilji einfald­lega ekki málið til fulls. Hugsanlega hafi eitthvað ekki náðst fram vegna samkomu­lagsins, en hann sjái ekki tilganginn með þeirri gagnrýni sem hann lýsir í færslunni.

„Kannski er eitthvað sem ekki fékkst vegna þessa en er raun­verulega skil ekki tilganginn“.

Margrét Tryggva­dóttir, rithöfundur og fyrr­verandi þingkona, er meðal þeirra sem skrifar athugasemd við færslu Atla Þórs og bendir á ákveðna staðreynd:

„Þetta er sama fólkið og vill alls ekki að neinn sjái hvernig samningur við ESB liti út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum