Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir Ísland spilltast á Norðurlöndum: „Sjávarútvegurinn á Íslandi er rótin að þessari spillingu“

Samherji. Þorsteinn Már. Myndin er samsett.
Samherji. Þor­steinn Már. Myndin er sam­sett.

Í nýrri grein í tímariti norska blaðsins Aftenposten sem kom út fyrir síðustu helgi segir að „á meðan önnur Norður­lönd geta stært sig af því að vera efst á lista yfir minnst spilltu lönd í heimi, hefur Ísland sokkið niður listann eftir mörg ár af ótrúlegum hneykslis­málum. Einkum er það sjávar­útvegurinn á Íslandi sem er rótin að þessari spillingu,“ segir í umfjöllun Heimildarinnar um áður­nefnda grein; þar er fjallað um íslenska kvóta­kerfið og Samherja­málið í Namibíu sem hefur verið til rann­sóknar á Íslandi og í Namibíu frá því síðla árs 2019.

Kemur fram að með vísunum í lista yfir spillingu á Norður­löndunum er vísað til þess að Ísland hefur fallið neðar á lista Transparency International síðustu árin.

Í greininni er að finna viðtal við uppljóstrarann í Namibíu­málinu, Jóhannes Stef­ánsson, og þar eru einnig viðtöl við Sigríði Dögg Auðuns­dóttur, formann Blaðamanna­félags Íslands, Atla Þór Fanndal, sem fer fyrir Íslands­deild Transparency International sem og Þórð Snæ Júlíusson, sem er annar ritstjóra Heimildarinnar.

Þórður Snær Júl­í­us­son annar rit­stjóri Heim­ild­ar­innar.

Í greininni fjallar blaða­maðurinn danski, Lasse Skytt, um spillinguna á Íslandi og í íslenskum sjávar­útvegi; hvernig spillingin hafi að vissu leyti verið flutt út til Namibíu í máli Samherja.

Fjallar Skytt um það hvernig nepótismi þrífist vel á Íslandi og sé mikið vandamál í svo litlu samfélagi og því íslenska:

Lasse Skytt blaða­maður.

„Ein augljós ástæða fyrir spillingunni er nepótisminn sem gengur kynslóð eftir kynslóð (að ganga erinda fjöl­skyldu og vina) sem blómstrar í litlum samfélögum eins og því íslenska. Allir þekkja alla – eða í flestum tilfellum þekkir maður einhvern sem þekkir viðkomandi. Boðleiðirnar eru þar af leiðandi miklu styttri en í stærri og flóknari samfélögum.“

Í greininni er sú kenning reifuð að eitt stærsta vanda­málið á Íslandi sé sú spilling sem einkenni sjávar­útveginn, kvóta­kerfið, hér á landi.

Kristján Þór Júl­í­us­son.

Eitt af því sem Lasse Skylt gerir í greininni er að tengja umfjöllun um Kristján Þór Júlíusson, fyrr­verandi þingmann Sjálfstæðis­flokksins og sjávar­útvegs­ráðherra, við Namibíu­málið og greinir sá danski frá tengslum hans við Samherja og Þorstein Má Baldvinsson:

„Þáverandi sjávar­útvegs­ráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sat í stjórn Samherja og er æskuvinur forstjóra Samherja, Þorsteins Más Baldvins­sonar,“ segir í kafla þar sem fjallað er um hversu erfitt Namibíu­málið hafi verið fyrir Kristján Þór.

Einnig er fjallað um það að Samherja­málið í Namibíu sé flokks­pólitískt á Íslandi; nefnir Skytt Sjálfstæðis­flokkinn sérstak­lega í því samhengi:

„Einkum er það einn stjórn­málaflokkur sem er með fiskilykt á fingrunum.“

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir.

Í greininni er að finna viðtal við Sigríði Dögg Auðuns­dóttur, formann Blaðamanna­félags íslands, þar sem hún ræðir um rannsókn lögreglunnar á nokkrum blaða­mönnum; lögreglu­rannsóknin er sett í samhengi við þá spillingu er talin er að þrífist á Íslandi – og er rauði þráðurinn í greininni.

Komið er inn á það sérstak­lega að það er lögreglan á Norður­landi eystra, með höfuð­stöðvar í heimabæ Samherja, Akureyri, sem sér um rann­sóknina.

Sigríður Dögg segir í viðtalinu að íslenska lögreglan sé að reyna að þagga niður í blaða­mönnum; hafa áhrif á möguleika þeirra til að reyna að sinna sínu starfi af heilindum:

„Þetta má túlka sem óeðlileg afskipti lögreglunnar af starfi blaða­mannanna, eitthvað sem þar að auki getur dregið úr blaða­mönnunum að gera aðrar opinberanir í milli­tíðinni og virkar þar af leiðandi hamlandi á vinnu þeirra.“

Samhliða rann­sóknum íslensku lögreglunnar á blaða­mönnum hér á landi sé raunin sú að færri og færri vilja starfa sem blaðamenn á Íslandi; vísað er í tölur þess efnis, og þær eru sláandi; árið 2012 voru 2.250 blaðamenn starfandi á Íslandi; í fyrra voru þeir aðeins 800.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim