Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hleypur 2000 kílómetra þrátt fyrir krabbamein og hjartaáfall: „Sigmundur þú ert bara ruglaður“

Sigmundur Stefánsson.
Sig­mundur Stef­áns­son. Mynd: Facebook síða Hjartaheilla.

„Læknarnir sögðu mér bara að gleyma maraþoni,“ segir Sigmundur Stef­ánsson en þann 2. febrúar næst­komandi mun hann, ásamt hlaupa­hópnum Frískir Flóamenn efna til áheita­hlaups. Sigmundur ætlar sér að hlaupa 70 km í tilefni af 70 ára afmæli sínu sem ber upp á þann sama dag. Hlaupið er til styrktar Hjarta­heillar og/eða Krabbameins­félagi Árnes­sýslu og er hópurinn nú að safna áheitum. Með þessu vilja Sigmundur og Frískir Flóamenn vekja athygli á mikilvægi hreyfingar, sérstak­lega þegar áföll og veikindi hafa herjað á. Hópurinn vill sýna fram á það að hægt sé að viðhalda þeim lífsstíl sem hvert og eitt hefur tileinkað sér, þrátt fyrir mótlæti, en Sigmundur hefur bæði fengið hjarta­áfall og verið greindur með krabba­mein.

Sigmundur er fæddur og uppalinn á Selfossi og er flestum Selfyssingum kunnugur. Hann greindist með sykursýki tvö uppúr fertugu og fór í framhaldi af því að stunda reglulega hreyfingu. Sigmundur byrjaði þá að hlaupa og var fljótt farinn að stunda það reglulega.  Þegar hann var 47 ára var hann langt kominn í undir­búningi á sínu fyrsta maraþoni, þá fær hann hjarta­áfall á miðri æfingu. Það kom síðar í ljós að ein æð hafði stíflast og myndað drep í hjarta­vöðva. Heppnin var þó með honum, drepið í hjartanu gekk til baka. Þegar hann útskrifast var honum sagt að gleyma öllum draumum um maraþon en Sigmundur var ekki á þeim buxunum. Hann sagði konu sinni að ef hann næði heilsu muni hann halda áfram að hlaupa og lifa þeim lífsstíl sem þau voru orðin vön. Tveimur árum seinna var Sigurður kominn í gott líkamlegt form, hann hleypur sitt fyrsta maraþon 50 ára. Nú á hann að baki tæplega 40 maraþon og yfir 50 hálf­maraþon en auk þess hefur hann tekið þátt í þremur járnkalla­mótum.

Þegar hjarta­læknir Sigmundar heyrði af ósköpunum spurði hann gjarnan frétta. Lækninum leyst ekki alltaf á blikuna og fékk hlaupa­garpurinn að heyra það. „Sigmundur, þú ert bara ruglaður.“

Með árunum breyttust viðhorf læknanna. Afrek Sigmundar voru gjarnan notuð sem dæmi þess að vel sé hægt að ná góðum árangri, þrátt fyrir líkamleg áföll. Þegar tveir áratugir voru liðnir frá hjarta­áfalli Sigmundar fór hann að finna fyrir eymslum en eftir þrjár tilraunir á hjarta­þræðingu var hann sendur í opna hjarta­aðgerð. Ekki var það allt sem Sigmundur þurfti að þola en á meðan leitað var lausnar á hjarta­vandamálum hans, greindist hann með krabba­mein í blöðru­hálskirtli. Hjarta­aðgerð, geisla­meðferð og rúmu ári síðar hefur Sigmundur náð heilsu á ný.

Eftir aðgerðina í júní ákvað hann gefa sér góðan tíma til að vera í rólegheitum, synti og fór í göngu­ferðir.  Hann byrjaði að hlaupa aftur um miðjan febrúar í fyrra og síðan hefur hann hlaupið um 2000 kílómetra.

Sjá nánari upplýsingar hér að neðan, fyrir þá sem vilja heita á Sigmund:

Sjá frekari umfjöllun um Sigmund á dfs.is hér:

https://www.dfs.is/…/hleypur-sjotiu-kilometra-a-sjotiu…/

Hægt er að heita á Sigmund til styrktar Hjarta­heill með því að smella hér: https://hjartaheill.is/…/wc-donation-styrkadi…/

Facebook síða Frískra Flóamanna er hér:

https://www.facebook.com/groups/135968469810840/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim