Guðjón Magnússon, hótelrekandi á Akureyri er það mikill aðdáandi vísindaskáldskapar að hann tók flug frá höfuðstað Norðurlands til Reykjavíkur til að sjá Terminator 2 í sérstakri föstudagspartýsýningu Bíó Paradísar síðastliðinn föstudag.
Guðjón eða Guddi eins og hann er ávalt kallaður, sagði í samtali við Mannlíf að hann hefði búið í Reykjavík fyrir 13 árum og hafi þá mætt á sérstaka sýningu Bíó Paradísar.
„Ég bjó í Reykjavík 2010 og fór þá á T1 og Robocop í Bíó Paradís en það sat alltaf sterkt í mér.“
Guddi sagði að hann hafi ekki verið lengi að taka ákvörðun þegar hann sá tilkynningu frá bíóinu um nýja föstudagspartýsýningu.
„Þegar það kom tilkynning um að T2 var á dagskránni þá pantaði ég mér strax miða og flug, fékk gistingu hjá félaga á Akranesi sem kom með mér en hann er harðasti Arnold [ Schwarzenegger – Innskot blaðamanns] aðdándi á Íslandi.“
Og hvernig fannst Gudda svo í bíói?
„Sýningin stóðst allar væntingar! hljóðkerfið frábært og stemningin góð. Það eru margir gimsteinar á dagskránni og en maður færi líklega á hausinn snemma ef maður færi á allar. En næsta er planið að fara á Jurassic Park!“ sagði Guddi illa sáttur og átti þá við sérstakar föstudagssýningar Bíó Paradísar en þá eru sýndir gamlir demantar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir