Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Þórólfur ráðleggur fólki að fara varlega: „Ljóst að þetta afbrigði er meira smitandi“

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Mynd/skjáskot: RÚV
Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir. Mynd/skjá­skot: RÚV

Ný undir­afbrigði omicron-afbrigðis kórónu­veirunnar, omicron BA.4 og BA.5, hafa á stuttum tíma orðið útbreiddustu afbrigðin í nýjum smitum víða um heim. Ísland er engin undan­tekning, en BA.5-afbrigðið ber nú ábyrgð á meirihluta smita hér á landi, sem hefur fjölgað talsvert undan­farnar vikur. Hin nýju afbrigði virðast meira smitandi en fyrri afbrigði, auk þess sem það lítur út fyrir að þau eigi greiðari leið framhjá vörnum bólu­setninga og fyrri sýkinga. Sóttvarna­læknir segir ástæðu til þess að fólk fari varlega, til að mynda í margmenni, skerpi á einstaklings­bundnum sótt­vörnum og hvetur alla til þess að þiggja örvunar­skammt af bóluefni.

Þórólfur Guðnason, sóttvarna­læknir, segir í samtali við Mannlíf að BA.4-afbrigðið sé ekki algengt hér á landi en að BA.5 hafi verið í miklum vexti. Hann segir að líkt og víðast hvar annarsstaðar beri það afbrigði ábyrgð á meirihluta greindra smita á landinu undan­farið.

„Það er nokkuð ljóst að þetta afbrigði er meira smitandi en fyrri afbrigði,“ segir Þórólfur. Hann segir sífellt virðast bætast í flóru afbrigð­anna og eðlilega nái þau mestri útbreiðslu sem séu mest smitandi.

Hann segir afbrigðið ekki virðast valda meiri veikindum en fyrri afbrigði omicron, sem voru mest áberandi á fyrri hluta árs. „Það er ekki að sjá að svo sé.“

Bólusetningar og örvunarskammtur skipta miklu

„Það er rétt að afbrigðið er að smokra sér undan vernd bólu­efnanna, en við vitum þó að bólu­setningin er ekkert sérstak­lega góð til þess að koma í veg fyrir smit en er ennþá góð til að koma í veg fyrir alvarleg veikindi. Þannig að það er eftir miklu að slægjast í því að láta bólusetja sig og fá þennan örvunar­skammt,“ segir Þórólfur.

Hann segir að eftir að BA.5-afbrigðið fór að dreifa sér um samfélagið hafi farið að bera meira á aukningu í endur­smitum. „Hjá þeim sem hafa sýkst áður. Þeir eru svona líklegri til þess að fara að smitast aftur.“ Hann segir það þó algengara meðal þeirra sem smituðust af Covid-19 áður en omicron-afbrigðið kom til sögunnar, í byrjun desember síðastliðnum. „Það getur líka verið tíminn; því lengri tími sem líður, því meira dvín verndin.“

Mynd/skjá­skot RÚV

Getur svipað til fyrstu afbrigða

Erlendis hefur eitthvað verið fjallað um að einkenni hinna nýju afbrigða geti jafnvel svipað meira til einkenna sem fylgdu fyrstu afbrigðum Covid-19, í upphafi faraldursins. Þórólfur kannast við að hafa séð það, en það sjáist þó aðallega hjá þeim sem séu óbólusettir eða illa bólu­settir. „Þeir eru að veikjast alvarlegar og með einkenni sem eru svipuð og sáust þarna í upphafi faraldursins. Þannig að það er klárt að bólu­setningin er að draga verulega úr alvarleika smitanna. Þannig að ég held að alvarleiki afbrigðisins sem slíks sé í raun og veru kannski ekkert minni en í fyrstu afbrigðunum, við erum bara komin með betra ónæmi í samfélagið. Bæði út af bólu­setningum og fyrri smitum, sem eru að dempa þetta niður. Samt erum við að sjá svona mikið af sýkingum.“

Sér ekki ástæðu til aðgerða en fólk ætti að fara varlega

Aðspurður segist Þórólfur ekki sjá ástæðu til þess að gripið verði til sérstakra aðgerða eða takmarkana vegna útbreiðslu smita. „Hins vegar höfum við verið að hvetja fólk, sérstak­lega þá sem eru óbólusettir eða illa bólu­settir, hafa ekki fengið Covid, fólk sem er eitthvað viðkvæmt fyrir; eldra fólk, fólk með undir­liggjandi sjúkdóma, að fara varlega. Nota grímur og gæta vel að hand­þvotti, fjarlægðar­mörkum og þessu sem allir þekkja nú. Þær ráðleggingar eru ennþá í gildi.

Svo getur maður líka hvatt almenning til að gæta vel að sínum grunn­sóttvörnum alla daga. Það er hand­þvottur, kannski að forðast fjölmenni og svoleiðis. En þetta eru bara svona almennar ráðleggingar sem við erum að koma með – mér sýnist nú fólk kannski ekkert vera að passa sig neitt sérstak­lega vel svona upp til hópa. En þetta eru aðallega þeir sem eru viðkvæmir fyrir; eldra fólk og fólk með undir­liggjandi sjúkdóma, vegna þess að við vitum að það fólk getur farið illa út úr sýkingunni, jafnvel þótt það sé bólusett. Þannig að það er um að gera að það fólk passi sig.“

Þórólfur segir útbreiðslu smita eflaust hafa mikið að gera með tíðar samkomur þessa dagana. „Það eru alls konar veislur í gangi, útskriftir, fermingar og slíkt. Það spilar klárlega megin­rulluna, plús það hvað þetta er smitandi afbrigði.“

Þórólfur segir eindregið mælt með því að fólk fái örvunar­skammt, óháð því hvort það hafi smitast af Covid eftir að hafa fengið fyrri og seinni skammt bóluefnis. „Við vitum auðvitað að það er vernd falin í því að fá Covid, en við vitum ekki nákvæmlega hversu góð hún er og ég held að það sé full ástæða til þess að hvetja fólk til að vernda sig bara sem best. Þannig að við erum að mæla með þessum örvunar­skammti fyrir alla, nema börnin.“ Hann segist því tvímæla­laust leggja það til við hrausta einstaklinga sem hafi fengið fyrri og seinni skammt bóluefnis, auk sýkingar, að ná sér í þriðju sprautuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað