Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ferill Bjarna Benediktssonar – Viktor Orri stiklar á stóru

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkins Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Um helgina er lands­fundur Sjálfstæðis­flokksins haldinn í Laugar­dalshöll og um tvöþúsund fundar­gestir. Í dag verður kosið um nýjan formann flokksins, hefst kosningin klukkan hálf eitt samkvæmt dagskrá lands­fundar. Búist er við hörðum slagi milli núverandi formanns Bjarna Benedikts­sonar og mótframbjóðanda hans Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar.

Í ljósi þessa birti Viktor Orri Valgarðsson, fyrrum vara­formaður Pírata, á fésbókar­síðu sinni upprifjun af fréttum og verkum Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra og sitjandi formanni flokksins. Bjarni hefur sætt harðri gagnrýni í gegnum árin og meðal annars nýverið fyrir að vilja ekki birta skýrslu um söluna á Íslands­banka.

Í færslu Viktors Orra segir:

Bjarni Ben var lengi með 40 milljónir í aflandsreikningi á Seychelles-eyjum, en segist ekki hafa haft hugmynd um það. Samt spurði starfs­maður Lands­bankans fyrir hans hönd „Þarf að skrá bréfin á nöfn?“ https://www.ruv.is/…/aflandsfelag-fjarmalaradherra…

Bjarni skrifaði líka undir vafnings-lána­samninga sem brutu reglur um lán til tengdra aðila og kostuðu ríkið sennilega tugi milljarða, en sagðist ekki hafa haft hugmynd um hvað hann var að skrifa undir. Seinna kom í ljós að það var auðvitað rangt. https://stundin.is/grein/5595/

Pabbi Bjarna var sá sem Bjarni skrifaði undir fyrir. Sama fyrirtæki, Hafsilfur keypti síðar hlut í Íslands­banka af ríkinu langt undir markaðs­virði, í sölu sem Bjarni leiddi sem fjármála­ráðherra og hafði bara átt að selja mun stærri hluti. https://kjarninn.is/…/spurdi-bjarna-hvort-thad-vaeri…/

Sami pabbi Bjarna, Benedikt Sveinsson, skrifaði líka undir umsókn barna­níðings um uppreist æru, og dómsmála­ráðuneytið braut lög með því að neita fórnar­lömbum hans (og fjöl­miðlum) um upplýsingar um það. https://stundin.is/grein/5421/

Í lok árs 2014 seldi Lands­bankinn frænda Bjarna fjármála­fyrirtækið Borgun langt undir markaðs­virði í lokuðu söluferli, þegar Lands­bankinn var kominn í eigu ríkisins og Bjarni var sjálfur fjármála­ráðherra. https://stundin.is/…/helsta-vorn-bjarna-er-ad-vita…/…

Sjálfur seldi Bjarni einmitt 50 milljón króna hlutabréf sín í Glitni daginn sem neyðar­lögin voru sett 2008, eftir að hafa setið neyðar­fundi með Glitni sem þingmaður, en sagði í viðtali 2016 að hann hefði ekki átt neitt „sem skiptir máli“ í bankanum. https://stundin.is/…/seldi-i-sjodi-9-sama-dag-og…/

Fyrir kosningarnar 2016 fékk Bjarni til sín svarta skýrslu um skatta­skjól, aflandsvæðingu og aðgerðar­leysi ríkis­stjórna sinna í fjármála­ráðuneytið, en sat á henni fram yfir kosningar. Hann laug fyrst um hvenær hann hefði fengið hana og sagðist síðar ekki hafa viljað setja hana „í kosninga­samhengi“. https://stundin.is/…/skyrslan-sem-kjosendur-fengu-ekki…/

Hann lofaði því líka skýrt fyrir kosningar 2013 að hans ríkis­stjórn myndi efna til þjóðar­atkvæða­greiðslu um umsókn Íslands að ESB, en sveik það síðan blákalt eftir kosningar og sagði „pólitískan ómöguleika“ að efna loforðið, þó ekkert hefði í raun breyst. https://kjarninn.is/…/2016-09-23-bjarni-lofadi…/

Svo kom hann auðvitað í veg fyrir það að prófessor yrði ritstjóri fræða­tímarits, eins og norrænir kollegar höfðu lagt til, á þeim yfirlýstu forsendum að sá hafði gagnrýnt Bjarna og hans pólitík, þó umrædd staða sé alfarið fræðileg og ekki pólitísk skipun. https://www.ruv.is/…/ekki-heppilegur-samstarfsadili…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning