Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir opinberaði samband sitt við Valgeir Gunnlaugsson, eiganda Íslensku flatbökunnar, fyrr í mánuðinum. Camilla deilir nú myndum af þeim skötuhjúum í fríi á Spáni, á Instagram síðu sinni. Þar má sjá þau drekka kokteila og spila golf.


Camilla skyldi við fyrrum eiginmann sinn, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, í maí síðastliðinn, eftir þrettán ára samband. Þau eiga saman tvo syni. Hún vakti mikla athygli á meðan skilnaðinum stóð og birti myndband á Instagram þar sem þau útskýrðu tildrög skilnaðarins. Þau virtust sátt með þessa ákvörðun og ætluðu sér að halda góðu vinasambandi.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir