Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hrafn Jökuls kom Steinunni Ólínu til bjargar aðeins 8 ára: „Íslandssonur sannur og góður“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir minnist Hrafns Jökuls­sonar í nýrri Facebook-færslu. Þar segir hún sögu af fallegu hjarta­lagi Hrafns þegar hann var aðeins polli.

Nátt­úru­barnið Hrafn Jök­uls­son

Hrafn Jökulsson lést í gær eftir erfiða baráttu við krabba­mein í hálsi. Hrafn var vinamargur og hafa fjölmargt samferða­fólk hans minnst hans í gær og í dag. Eitt þeirra er leikkonan og þátta­stjórn­andinn Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir. Í færslunni segir hún sögu sem hún rifjaði nýlega upp með Hrafni en sagan sýnir hversu snemma hjarta­gæska Hrafns kom í ljós:

„Ég heimsótti Hrafn á heimili Diddu fyrir rúmum mánuði síðan en þar bjó hann hjá sinni traustu og góðu vinkonu siðasta æviárið og rúmlega það. Við stöndum öll í þakkar­skuld við hana Diddu, að reynast þessum einstaka manni Hrafni Jökuls­syni svo vel.

Íslands­sonur sannur og góður og einstak­lega góðum gáfum prýtt flækjumenni. Maður sem auðgaði samfélag okkar og sagði þegar aðrir þögðu.Ég heimsótti hann til að segja honum sögu sem ég var viss um að hann væri búin að gleyma og hann tók af mér loforð að skrifa þessa sögu niður.Þannig var að ég var ásamt mömmu gestur á heimili Jökuls. Heimilið var við sjóinn og það er sumar. Ég er kannski 4-5 ára. Þetta var erfið heimsókn því Jökull og Mamma voru hvorugt með nokkra getu til að sinna börnum sökum drykkju. En þá kom Hrafn mér til bjargar 4 árum eldri. Hann smurði handa mér brauð með sultu og lék við mig og huggaði. Svona var Hrafn átta ára hnokki. Hver passaði hann?Börnum, eiginkonu, vinum og fjöl­skyldu Hrafns sendi ég mínar hlýjustu samúðar­kveðjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“