Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Drífa Snædal: „Ég óttast að ríkissáttasemjari hafi ekki hugsað þetta til enda“

Drífa Snædal.
Drífa Snædal.

Drífa Snædal fyrr­verandi forseti ASÍ segir í Facebook-færslu á síðu sinni að „með ákvörðun sinni að leggja fram miðlunar­tillögu er ríkis­sátta­semjari heldur betur að teygja á heimildum sínum. Það er véfengjanlegt að hann hafi þessar heimildir án samráðs við deilu­aðila en heimildir Eflingar til að semja fyrir sitt fólk og undirbúa verkfalls­aðgerðir eru óvéfengdar. Sama hvað fólki kann að finnast um framgöngu samninga­nefndar Eflingar.“

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari.

Bætir við:

„Með þessu er ríkis­sátta­semjari að nýta til hins ýtrasta sínar vald­heimildir og jafnvel aðeins umfram það og þetta er stór­hættulegt fordæmi fyrir deilur á hinum íslenska vinnu­markaði. Þegar einu sinni er búið að taka svona ákvörðun er hætt við að hún verði tekin aftur og aftur og aftur. Það er nánast ómögulegt fyrir félags­menn að fella slíka miðlunar­tillögu, það þarf töluvert meiri kosninga­þátttöku til að fella tillöguna en náðst hefur hingað til í almennum atkvæða­greiðslum. Ef þetta er það sem koma skal á íslenskum vinnu­markaði er verið að draga úr mögu­leikum og heimildum einstakra stéttar­félaga til að ráða sínum málum sjálf og beita því eina vopni sem launafólk býr yfir – að leggja niður störf. Ég óttast að ríkis­sátta­semjari hafi ekki hugsað þetta til enda.“

Hún segir einnig að „hætt er við að deilan fari í enn meiri hnút og traust til embættis ríkis­sátta­semjara minnki hjá launa­fólki á Íslandi. Það er hins vegar mín skoðun að félagar í Eflingu hefðu átt að fá að greiða atkvæði um það tilboð sem lá á borðinu en það á að gerast á félags­legum grunni en ekki með valdboði ríkis­sátta­semjara.“

Drífa nefnir að endingu að „með þeirri stöðu sem nú er komin er hætt við að launafólk upplifi einmitt það, valdboð að ofan í stað félagslegra lausna innan síns félags.

Það er ljóst að stjórn­völd og atvinnu­rekendur hafa látið sig dreyma um auknar vald­heimildir ríkis­sátta­semjara en það hefur verið í andstöðu við verkalýðs­hreyfinguna. Að ríkis­sátta­semjari taki sér þetta vald núna verður varla til að efla samtal um bætt vinnu­brögð í samninga­gerð og getur haft alvarlegar afleiðingar á samskipti á vinnu­markaði til lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim